Virkilega flott alhliða silungsveiðistöng sem nota má í straumvatn sem vatnaveiði. Einhendan er nokkuð hröð en skemmtileg í fiski og veitir mjög mikla næmni og tilfinningu fyrir fiskinum. Stöngin ber flestar gerðir silungaflugna, allt frá þurrflugum upp í smærri straumflugur. Hún nýtur sýn best með flotlínu og frammjókkandi taum.
REN eru vandaðar fluguveiðistangir úr smiðju Nám. Þær eru gerðar úr einstakri grafítblöndu með ótrúlegum togstyrk. Þetta gerir það mögulegt að framleiða stangirnar með mjög léttum, fíngerðum topp sem sameinar nákvæmni og gríðarlega næmni. Óframsækin miðlungs djúp hleðsla í miðhluta stanganna veitir góða tilfinningu í köstunum. Niðurstaðan er mikill línuhraði án þess að fórna fínleikanum. Þegar á fyrstu metrum línunnar er stöngin hlaðin, sem gerir veiði á stuttu færi enn ánægjulegri.
Þunnur stangardúkurinn (e. blank) úr nútíma koltrefjum sýnir sig í hefðbundinni dökkbrúnni áferð stanganna. Þær eru með ofurléttum en sterkum lykkjum framleiddar úr títan. Handfangið er úr Delgado-korki í hæsta gæðaflokki. Hjólasætið er úr áli og rafhúðað með svartri áferð samkvæmt hefðbundinni skandinavískri hönnun.
GL Hitamælir
Jungle Cock Gervifjaðrir
Guideline LPX Nymph Einhendupakki 10,2' #4
Guideline Experience Vatnsheldur 21L Bakpoki
Stonfo Áhaldasnúra
GL Áhaldaspóla
Veniard Cock Pheasant Centre Tails Mixed
Stonfo Lanyard Hálsfesti
Guideline Elevation 9' #6
Patagonia Stand Up Trout Trucker Black Derhúfa
GL Áhaldaspóla
Loop 7X 9' #5
Guideline Gear Bag - Veiðitaska
Guideline Stretch Vöðluelti
Áhald fyrir hálfhnút
CND Nordic 13' #8/9
Acryl-þynnir
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #6
Echo Lift 9' #8
Guideline LPX Chrome Switch-pakki 11,7' #8/9
Loop 7X 10' #5 






