Virkilega vandaður fluguveiðipakki sem inniheldur Loop ZX einhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Þverá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þetta er verulega öflugur fluguveiðipakki sem nýtist við krefjandi aðstæður og víðáttumikil veiðisvæði. Stöngin er tilvalin í sjóbirtingsveiði og með henni má ná löngum og nákvæmum köstum. Hún býr yfir nægum línuhraða til að kasta stórum flugum og fer létt með sökklínur og sökkenda.
Loop ZX einhendurnar eru hraðar (e. fast action) og nýtast best þeim sem eru með tiltölulega hraðan kaststíl. Þær henta vel í yfirhandarköst og bera þungar línur og stórar flugur. Stangirnar eru virkilega öflugar og eru kjörnar í stærri fiska og krefjandi aðstæður. Þær eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross SX, þökk sé nýrri nano resin tækni sem er umtalsvert betri en áður. Að auki er sérhver stöng framleidd með 40–45 tonna nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl.
Z stangirnar eru öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Hver stöng er með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5 sem er fimmta kynslóðin af þeim frábæru fluguveiðihjólum. Þau eru þekkt fyrir stílhreint útlit og einstök gæði. Evotec G5 er með „Power Matrix Drag System“ sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrirfinnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Bremsan tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.
Hjólið er framleitt úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þess er virkilega fallegt og fær málmgrár liturinn að njóta sín. Á því eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.
Á hjólinu er undirlína og Þverá flotlína. Kaupendur hafa einnig val um að velja aðra línu, hvort heldur flot- eða sökklínu. Þverá er kraftmikil og nákvæm lína sem hleður stöngina auðveldlega, skilar löngum köstum og rennur mjúklega í gegnum lykkjur stangarinnar. Hún hentar afar vel við krefjandi aðstæður – hvort sem það er vindur, þröngt bakland eða þungar flugur. Línan er með sleipri kápu sem auðveldar stjórn og lagfæringar á vatni. Tvílita hönnun – gráleitur skothaus og appelsínugul rennilína – gerir línuna sýnilega þar sem það skiptir máli, án þess að trufla fiskinn. Þverá nýtur sín vel í yfirhandarköstum sem og veltiköstum.
Loop ZX stangarpakkinn er í alla staði vandaður og hentar þeim sem kjósa gæði og áreiðanleika.


