Virkilega vandaður fluguveiðipakki sem inniheldur Loop ZX einhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Loop Opti Drift flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinasamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þetta er mjög öflugur fluguveiðipakki sem nýtist við fjölbreyttar aðstæður og veiðisvæði. Með stönginni má ná mikill kastlengd, jafnvel í miklum vindi. Hún er næm þrátt fyrir mikinn hraða og fer ótrúlega vel með nettum taumum. Stöngina má nota bæði í lax- og silungsveiði og með henni má kasta vel flestum gerðum flugna.
Loop ZX einhendurnar eru hraðar (e. fast action) og nýtast best þeim sem eru með tiltölulega hraðan kaststíl. Þær henta vel í yfirhandarköst og bera þungar línur og stórar flugur. Stangirnar eru virkilega öflugar og eru kjörnar í stærri fiska við krefjandi aðstæður. Þær eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross SX, þökk sé nýrri nano resin tækni sem er umtalsvert betri en áður. Að auki er sérhver stöng framleidd með 40-45 tonna nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl.
Z stangirnar eru öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Hver stöng er með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5 sem er fimmta kynslóðin af þeim frábæru fluguveiðihjólum. Þau eru þekkt fyrir stílhreint útlit og einstök gæði. Evotec G5 er með „Power Matrix Drag System“ sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrirfinnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Bremsan tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.
Hjólið er framleitt úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þess er virkilega fallegt og fær málmgrár liturinn að njóta sín. Á því eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.
Á hjólinu er undirlína og Loop Opti Drift flotlína. Kaupendur hafa einnig val um að velja aðra línu, hvort heldur flot- eða sökklínu. Opti Drift er hönnuð til að hámarka skilvirkni flugukastsins og framsetningu flugunnar. Hún er afbragðsgóð við hverskonar aðstæður, í logni sem vindi, en nýtur sín ekki síður vel þar sem pláss fyrir bakkastið er takmarkað. Línan er með langri bak-taperingu, þ.e. þyngdin færist aftar á lengra svæði, en sá eiginleiki auðveldar veiðimönnum að menda línuna í straumvatni, auk þess sem línan leggst mun betur á vatnsflötinn.
Opti Drift er tvílit sem hjálpar til við línustjórnun í vatni, en ekki síður til að auðvelda veiðimanni að finna hleðslupunkt stangarinnar. Línan hleður stöngina mjög auðveldlega og rennur ákaflega mjúklega í gegnum lykkjur hennar.
Loop ZX stangarpakkinn er í alla staði vandaður og hentar þeim sem kjósa gæði og áreiðanleika.