Virkilega vandaður fluguveiðipakki sem inniheldur Loop ZX einhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Þverá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Sannarlega öflugur fluguveiðipakki sem nýtist við krefjandi aðstæður og stærri veiðisvæði. Stöngin er sú öflugasta í ZX seríunni og nýtist best í stórum fiskum, þá sérstaklega sjóbirtingi og laxi. Stöngin er nægjanlega öflug til að kasta stórum straumflugum og þungum línum. Hún er afar kraftmikil og stendur sig með prýði þegar vindstyrkur er mikill.
Loop ZX einhendurnar eru hraðar (e. fast action) og nýtast best þeim sem eru með tiltölulega hraðan kaststíl. Þær henta vel í yfirhandarköst og bera þungar línur og stórar flugur. Stangirnar eru virkilega öflugar og eru kjörnar í stærri fiska og krefjandi aðstæður. Þær eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross SX, þökk sé nýrri nano resin tækni sem er umtalsvert betri en áður. Að auki er sérhver stöng framleidd með 40–45 tonna nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl.
Z stangirnar eru öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Hver stöng er með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5 sem er fimmta kynslóðin af þeim frábæru fluguveiðihjólum. Þau eru þekkt fyrir stílhreint útlit og einstök gæði. Evotec G5 er með „Power Matrix Drag System“ sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrirfinnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Bremsan tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.
Hjólið er framleitt úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þess er virkilega fallegt og fær málmgrár liturinn að njóta sín. Á því eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.
Á hjólinu er undirlína og Þverá flotlína. Kaupendur hafa einnig val um að velja aðra línu, hvort heldur flot- eða sökklínu. Þverá er öflug og nákvæm lína með stuttum skothaus sem hleður stöngina hratt og veitir mikið jafnvægi í kastinu. Hún flýtur hátt og rennur mjúklega í gegnum lykkjur stangarinnar – jafnvel þegar mikið liggur við og aðstæður eru krefjandi. Línan er með sleipri kápu og tvílita hönnun: gráleitur skothaus sem fellur vel að vatninu og appelsínugul rennilína sem veitir góða yfirsýn. Þverá hentar sérlega vel þegar nákvæmni og kraftur þurfa að haldast í hendur – og veitir veiðimanni trausta stjórn.
Loop ZX stangarpakkinn er í alla staði vandaður og hentar þeim sem kjósa gæði og áreiðanleika.
Guideline The Snake Derhúfa - Caramel
Morsetto Tubefly Hnýtingaþvinga
Guideline Fly Fishing Cap K. Pumpkin Derhúfa
Guideline Trout Slit Flugubox
Coghlans Flugnanet
Áhaldaspóla
Loon Reel Lube - Hjólafeiti
Loop Classic 10/13
Guideline Coastal Solartech Derhúfa
Fishpond Stormshadow Chest Pack - Brjóstpoki
Fishpond South Fork Vöðlubelti
Dr. Slick Bodkin Nál
Veniard Hen Pheasant Shoulder Feathers
Einarsson Silfur 5Plus
Einarsson Silfur 8Plus
Guideline Logo Grá Derhúfa
Tacky Pescador Medium - Clear- Burnt Orange Flugubox
Fishpond Tacky Pescador Leaflet Innlegg XL
Loon Stream Line - Línuhreinsir
Stonfo Fly Patch - Flugupaddi
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #6
Guideline Fario Click 2/3
Fishpond Summit Sling 2.0 Tortuga - Axlartaska
Hnútaherðari
Tacky Pescador - Small - Burnt Orange - Flugubox
Fishpond Thunderhead Eco Yucca - Vatnsheld Mittistaska
Hatch Finatic 12+
Fishpond Thunderhead Sub. Pouch Þurrpoki - Eco S. Camo
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #4 






















