Mjög flottur fluguveiðipakki sem inniheldur Loop ZT 6-hluta tvíhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Hofsá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þessi tvíhendupakki er samsettur fyrir litlar og meðalstórar ár. Stöngin nýtist bæði í lax- og silungsveiði, hérlendis sem erlendis. Hún er tiltölulega mjúk með djúpa og fremur hæga hleðslu. Stöngin er tilvalin við viðkvæmar aðstæður þar sem góð framsetning skiptir höfuðmáli. Stöngin er virkilega skemmtileg í fiski og veitir mikla tilfinningu fyrir agninu og bráðinni.
Loop ZT tvíhendurnar eru byggðar á sömu hugmyndafræði og Loop Z1, en í stað þess að vera í fjórum hlutum eru þær í sex hlutum. T-ið stendur því fyrir travel, en stangirnar eru einkum hugsaðar fyrir þau sem ferðast á milli landa. Loop ZT eru fáanlegar í fjölbreyttu úrvali sem henta við ólíkar aðstæður og veiðisvæði. Stangirnar eru einkar nákvæmar, fisléttar og veita afbragðs línustjórnun. Þær eru meðalhraðar (e. medium fast action) með djúpri hleðslu og ótrúlegu afli.
Loop Z stangirnar eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra, þökk sé nýrri nano resin tækni. Þær eru um leið öflugri en Cross S1 stangirnar og ná enn meiri kastvegalengd. Sérhver stöng er framleidd með 40–45 tonna nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl. Í raun eru Z stangirnar öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Hver stöng er með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5 sem er fimmta kynslóðin af þeim frábæru fluguveiðihjólum. Þau eru þekkt fyrir stílhreint útlit og einstök gæði. Evotec G5 er með „Power Matrix Drag System“ sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrirfinnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Bremsan tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.
Hjólið er framleitt úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þess er virkilega fallegt og fær málmgrár liturinn að njóta sín. Á því eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.
Á hjólinu er undirlína og Hofsá flotlína – hágæða, samfelld tvíhendulína sem sérframleidd er fyrir íslenskar aðstæður. Hún er hönnuð með laxveiðiár á borð við Hofsá, Selá og Miðfjarðará í huga og nýtist vel bæði við stutt og lengri köst. Hún er örlítið þyngri en hefðbundinn línukvarði segir til um og hleður stöngina með lágmarks fyrirhöfn. Línan leggst mjúklega á vatnsflötinn og hentar sérstaklega vel í viðkvæmum aðstæðum eins og í logni, við lága vatnsstöðu eða mikla birtu. Rennilínan er appelsínugul fyrir góða yfirsýn, en skothausinn í látlausum grænum lit sem truflar síður fisk.
Loop ZT tvíhendupakkinn er samsettur til notkunar innanlands sem utan. Þetta er tilvalinn pakki fyrir þau sem ferðast á milli landa og gera ríkar kröfur um gæði og áreiðanleika.
Guideline Embrace Tvíhendupakki 12' #7/8
Fulling Mill Guide Flugubox - Red
Tube Fly Tool - Túputól
GL Hitamælir
Fishpond Nomad Native Silungaháfur
Tacky Daypack Flugubox 2X
Hackle Guard áhald
GL Losunartöng
Leech X2 - Performance - Copper Silver
Stonfo Reel Line Clip Taumhald
Tacky Fly Dock 2.0 Flugupaddi
Guideline Mayfly Suede Derhúfa - DK Brown
Loop Logo Húfa Svört
Sumo Stangahaldarar með Sogskálum
Guideline Coastal Solartech Derhúfa
Guideline Elevation Tvíhendupakki 12‘ #7/8
Loop 7X 12,6' #6
Tacky Pescador Leaflet- XL- Dynamic Foam Millispjald
Vision Meri Silungaháfur
Stonfo Geymslubox - 12 Hólf
Fishpond Dakota 31" stanga- og hjólataska
Gudeline Curved Forceps Losunartöng
Loon Payetta Paste - Flotáburður
Þræðari Elite 1,4 mm
Loon Snake River Mud - Sökkefni
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #4
Guideline The Waterfall Solartech Derhúfa
GL Áhaldaspóla
Loon Strike Out - Tökuvari
Loon UV Knot Sense - Hnútalím 




















