Vision Meri silungaháfurinn er einfaldur og traustur háfur sem hentar vel fyrir vatnaveiði og veiðar í ám. Hann er hannaður með léttleika og notagildi í huga, án þess að fórna styrk eða endingu.
Grindin er úr léttu áli sem gerir háfinn auðveldan í meðförum, en samt nægilega sterkan til að takast á við stærri silung. Handfangið er stutt, aðeins 24 cm, sem gerir hann handhægann og þægilegan þegar veitt er á ferðinni eða í þröngum aðstæðum. Á handfanginu er mjúkt EVA-grip sem liggur vel í hendi, jafnvel þegar það blotnar.
Netið er úr gúmmíefni sem fer vel með fiskinn og flækist síður í krókum. Dýpt netsins er um 50 cm, sem gefur gott pláss fyrir stærri fiska og tryggir örugga löndun.
Þetta er hagkvæmur og áreiðanlegur háfur sem hentar vel fyrir veiðimenn sem vilja léttan og praktískan búnað við vatnið.
- Lengd: 79 cm
- Breidd: 42 cm
- Þyngd: 390 g
- Grind: Ál
- Net: Gúmmí
- Dýpt nets: um 50 cm
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Guideline Travel Rod Bag - Stangataska
Guideline Landing Net Leash - Háfasnúra
Fishpond Lodgepole Fishing Satchel Duskwood - Veiðitaska
Patagonia Stealth Switch Pack 3L Veiðitaska - G. Green
IG Silungapoki
Tacky Fly Dock - MagPad - Burnt Orange Flugupaddi
Loop Trak 9,6' #7
Guideline Stream Thermometer - Vatnshitamælir 












