Afar vandaður fluguveiðipakki sem inniheldur Loop Z1 switch-stöng, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Hofsá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þessi switch-pakki er samsettur til notkunar í lax- og sjóbirtingsveiði. Stöngin er fislétt og veitir mikla tilfinningu fyrir bráðinni. Hún er hárnákvæm og hefur nægt afl til að eiga í baráttu við stóra fiska. Þetta er stöng sem nýtist í fjölbreytta veiði og ber hún vel flestar gerðir flugna.
Loop Z1 switch-stangirnar eru hannaðar sem stuttar og léttar tvíhendur. Þær nýtast bæði í silungs- eða laxveiði, á skemmra sem lengra færi. Þó svo að stangirnar séu uppbyggðar líkt og tvíhendur má einnig kasta þeim með annarri hendi. Stangirnar eru meðalhraðar (e. medium fast action) og skapa óviðjafnanlega upplifun í fiski. Þetta eru stangir sem henta í ár og stöðuvötn en eiginleikar þeirra nýtast þrátt fyrir allt best í straumvatni.
Loop Z1 stangirnar eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross S1, þökk sé nýrri nano resin tækni. Að auki er sérhver stöng framleidd með 40–45 tonna nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl. Í raun eru Z stangirnar öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Hver stöng er með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5 sem er fimmta kynslóðin af þeim frábæru fluguveiðihjólum. Þau eru þekkt fyrir stílhreint útlit og einstök gæði. Evotec G5 er með „Power Matrix Drag System“ sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrirfinnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Bremsan tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.
Hjólið er framleitt úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þess er virkilega fallegt og fær málmgrár liturinn að njóta sín. Á því eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.
Á hjólinu er undirlína og Hofsá flotlína. Hún er örlítið þyngri en hefðbundinn kvarði segir til um og hleður stöngina með lágmarks fyrirhöfn. Línan leggst mjúklega á vatnsflötinn og hentar sérstaklega vel við aðstæður þar sem nákvæmni og fín framsetning skipta máli – t.d. í logni, björtu veðri eða við lága vatnsstöðu. Hún nýtist einstaklega vel í stuttum köstum en skilar sér einnig í lengri köstum þegar á þarf að halda. Hofsá er fjölhæf lína sem virkar jafnt í undirhandarköstum og yfirhandarköstum, hugsuð til notkunar með löngum taumum og hentug í litlar og meðalstórar ár. Skothausinn er í látlausum grænum lit, en rennilínan appelsínugul og auðvelt að sjá við allar birtuaðstæður.
Loop Z1 switch-pakkinn er einstaklega skemmtilegur og hentar þeim sem kjósa gæði og áreiðanleika.
Loon Hydrostop - Vatnsvari
Guideline Elevation 12' #7/8
Patagonia Take a Stand Trucker Hat B. Brown Derhúfa
Guideline The Camper Dark Grey Derhúfa
Loop Logo Húfa Rauð
Acryl-flugulakk
Guideline WP Slit Foam Swing Leaf - Flugubox
Loon Fast Cast Tool - Línuhreinsunartæki
Smith Creek Middle Fork Fly Patch - Flugugeymsla
Guideline Multi Grip Veiðiháfur L
Loon Reel Lube - Hjólafeiti
CND Gravity 13,4' #8/9
Loon UV Knot Sense - Hnútalím
Fishpond Arrowhead Áhaldagormur Svartur
Patagonia Stealth 25L M Bakpoki - R. Green
Loon Payetta Paste - Flotáburður
Reiða Öndin - Sarpur
Þræðari Elite 1mm
Guideline Trout Slit Flugubox
Leech Hawk - Pro - Yellow
Guideline Mayfly Suede Derhúfa - DK Brown
Loop ZT Tvíhendupakki 14' #9
Echo Lift Einhendupakki 9' #8
Reiða Öndin - Snúra
Stonfo Áhaldasnúra
Hackle Guard áhald
Guideline Badge Trucker Cap Forest Derhúfa
Loon Taumaspóluhaldari
Loon Leader Straightener - Taumastrekkjari
Zap-A-Gap Lím með bursta
Dropper Festingar
Loon Fly Line Cleaner - Línuhreinsiefni
Loon Bite Ease - Flugnabitsáburður
Guideline Embrace Tvíhendupakki 12' #7/8
Loop Trak 14' #9
Loop ZX Einhendupakki 10' #6
Stonfo Reel Line Clip Taumhald
Veniard Peacock Eye Top Natural
Tacky Daypack Flugubox Orange
Tacky Pescador MagPad - Small - Smoke Grey - Flugubox
Veniard Hen Pheasant Shoulder Feathers
Fishpond Headwaters Terra Derhúfa
Xink sökkefni á flugur
Guideline Logo Svört Derhúfa
Norðurá - enn fegurst áa
Leech Cleaning - Gleraugnasprey
Losunartöng
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Svört Derhúfa
Leech ATW2 - Intro - Copper
Loon Graffitolin Ferrule Vax - Samskeytavax
Tacky Daypack Flugubox
C&F Hnýtingagálgi
Fifty Places to Fly Fish
Loop Z1 Einhendupakki 10' #7
GL Losunartöng
Loop ZX Einhendupakki 9' #7
Loop Z1 Einhendupakki 9,6' #7 




















