Loop Trak 9,6 feta einhendupakki í línuþyngd #7 er öflugur og fjölhæfur fluguveiðipakki fyrir veiðimenn sem vilja góða stjórn og nægan kraft fyrir stærri flugur. Í pakkanum er Loop Trak 9,6′ #7 flugustöng, Loop Q 6/8 fluguhjól og Þverá flotlína. Þetta er góð samsetning fyrir lax, sjóbirting og aðrar aðstæður þar sem þarf að kasta af öryggi og halda góðri stjórn á línunni.
Loop Trak 9,6′ #7 er öflug einhenda sem hentar sérstaklega vel þegar veitt er með stærri flugum, hvort sem notaðar eru flotlínur eða sökklínur. Hún er góð í veiði á göngufiski, hvort sem kastað er túpum á lax eða leitað að sjóbirtingi með straumflugum.
Lengdin, 9,6 fet, gefur aðeins meiri seilingu og betri línustjórn en hefðbundin 9 feta stöng, án þess að stöngin verði of þung eða stirð í notkun. Stöngin er meðalhröð og vinnur vel í gegnum kastið. Hún heldur mjúkri og jafnri tilfinningu, en hefur samt nægan kraft þegar kasta þarf lengra, ráða við vind eða snúa stærri flugum við.
Með stönginni fylgir Loop Q 6/8, létt og traust fluguhjól fyrir einhendur í línuþyngd #6–8. Hjólið er framleitt úr slitsterku áli, með stórri V-laga spólu sem tryggir hraða línuupptöku og minnkar línuminni. Innbyggð og innsigluð bremsa skilar mjúkri og stöðugri mótstöðu, og einfalt skrúfukerfi við spóluskipti tryggir að engir lausir hlutir tapist við árbakkann.
Þverá flotlínan passar vel með pakkanum og gerir hann tilbúinn í fjölbreyttar íslenskar aðstæður. Hún er með fremur stuttan skothaus sem hleður stöngina auðveldlega og gerir köstin einföld, jafnvel þegar pláss er takmarkað eða vindur gerir vart við sig. Línan flýtur hátt, rennur vel í gegnum lykkjurnar og tvílituð hönnunin hjálpar veiðimanni að finna réttan hleðslupunkt í kastinu.
Loop Trak Einhendupakki 9,6′ #7 er góður kostur fyrir veiðimenn sem vilja kraftmikinn og meðfærilegan einhendupakka fyrir lax og sjóbirting sem ræður vel við stærri flugur. Hann hentar vel þegar þörf er á meiri stjórn, góðri yfirferð og öruggri framsetningu við breytilegar aðstæður.
Sealskinz Marham - Vatnsheld Derhúfa
Guideline Logo Svört Derhúfa
Patagonia Fly Catcher R. Tan Derhúfa
Einarsson Bronz 5Plus
Guideline Salmon Suede Derhúfa - Tan
Fishpond Ridgeline Bakpoki
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #4 





















