Loop Trak 9′ #4 er létt og fínleg einhenda fyrir þá sem vilja nákvæma framsetningu og góða tilfinningu í silungsveiði. Hún er hluti af Trak línunni frá Loop, sem er hönnuð til að bjóða upp á góða frammistöðu, jafnvægi og notendavæna virkni á mjög hagstæðu verði.
Trak stangirnar eru byggðar með fjölbreyttar veiðiaðstæður í huga og hver stöng í línunni hefur sitt ákveðna hlutverk. Í þessari línu er lögð áhersla á að stangirnar séu auðveldar í notkun, búi að afli en veiti samt þá nákvæmni sem ætlast má til.
Loop Trak 9′ #4 er ein léttasta stöngin í Trak línunni og hentar sérstaklega vel þegar veitt er með litlum þurrflugum og fíngerðum púpum. Stöngin hleðst djúpt með mjúkri, meðalhraðri sveigju sem umbunar rólegum og jöfnu köstum. Þetta gerir stöngina einstaklega skemmtilega í nákvæmri veiði þar sem mikilvægt er að leggja fluguna mjúklega fram.
Þessi stöng nýtur sín vel í silungsveiði þar sem fiskurinn er var um sig og framsetningin þarf að vera fínleg. Hún hentar vel fyrir urriða og bleikju, en líka í aðstæður þar sem gráðugur fiskur víkur fyrir varfærnum tökum og léttari taumum. Með henni er auðvelt að stjórna línunni, halda góðri tengingu við fluguna og kasta af nákvæmni á styttri og meðal löngum færum.
Stöngin er úr koltrefjum og er meðalhröð, með vönduðu AAA korkhandfangi, góðu hjólasæti með koltrefjainnleggi og ryðfríum lykkjum sem veita lágmarks mótstöðu. Loop Trak 9′ #4 er frábær kostur fyrir veiðimenn sem vilja létta, nákvæma og fágaða flugustöng fyrir fínlega silungsveiði.
Loop Opti Strike - Black
Loop Logo Dad Cap Camofly Khaki Derhúfa
Loop Classic 8/11
Loop Evotec G5 6/8
Loop Opti Gyre - Black
Loop Fly Trucker Cap Khaki Derhúfa
Loop Logo Dad Cap Dark Navy Derhúfa
Nám VOR 10' #7
Loop Opti Runner - Black
Loop Opti Speedrunner - Aurora Turquoise
Loop Classic 10/13
Loop Z1 10' #7
Loop Fly Trucker Cap Blue Gray Derhúfa
Loop Classic 7/9
Loop Stilren Military Green Húfa
Loop Logo Dad Cap Ecru Derhúfa
Loop Dry Travel Wheelbag 150L - Ferðataska
Loop 7X 12,6' #9
Loop Opti Rapid - Black
Loop Evotec G5 9/13
Guideline LPX Chrome 12,3' #6/7
Loop 7X 9,6' #6
Loop Stilren Stone Gray Húfa
Guideline NT11 Fast Full Flex 10' #8
Loop Dry 25L Green Bakpoki
Guideline LPX Nymph 10,2' #4 











