Loop Q 4/6 er hannað fyrir þá sem vilja áreiðanlegt fluguhjól án óþarfa flækjustigs – hjól sem virkar og heldur sér, veiði eftir veiði. Þetta hjól er fullkomið fyrir einhendur í línuþyngd #4–6 og hentar jafnt fyrir byrjendur sem vanari veiðimenn í silungsveiði. Q hjólið er gert úr léttu og slitsterku áli með dökkgráu yfirborði og táknrænu L Loop-merki í hliðinni. Stór V-laga spóla tryggir hraða línuupptöku og minnkar línuminni.
Bremsukerfið er innsiglað og skilar mjúkri, jafnri og stöðugri mótstöðu. Þægilegt handfang veitir gott grip og spóluskipting er einföld með skrúfukerfi sem heldur öllum hlutum föstum – ekkert sem getur tapast í grasinu við árbakkann.
Helstu eiginleikar:
• Létt og hagkvæmt hjól fyrir línuþyngd #4–6
• Stór V-laga spóla – hraðari línuupptaka og betri línustýring
• Lokuð bremsa – örugg og stöðug
• Mótvægi í spólu fyrir gott jafnvægi
• Engir lausir hlutir – örugg skrúfusamsetning
• Loop L-merki í klassískri dökkgrárri áferð
Tæknilýsing:
• Stærð: #4–6 (einhendur)
• Smíði: Steypt ál
• Litur: Gunmetal grátt
• Spóla: V-laga stór spóla
• Bremsa: Innbyggð og innsigluð
• Spóluskipting: Einföld skrúfusamsetning
• Hulstur: Nylon hulstur fylgir
Loon Bite Ease - Flugnabitsáburður
Nám REN 9' #4
Lifesystems Flugnanet
Stonfo Vigt
Umpqua UPG Foam WP Weekender Large Olive - Flugubox
Loop Classic 8/11
Echo Base 2/3
Loon Áhaldasett
Stonfo Áhaldasnúra 










