Loop Opti hjólin eru án efa ein bestu fluguveiðihjólin á markaðnum.
Hjólin eru öll breiðkjarna (e. large arbor) en séreinkenni Loop Opti er V-laga hönnun spólunnar. Uppbygging hjólsins gerir veiðimönnum kleift að ná inn slaka flugulínunnar hratt og örugglega en slíkur eiginleiki nýtist laxveiðimönnum sérstaklega vel. V-laga hönnunin skilar því umfram hefðbundin hjól að línan leggst betur þegar hún er spóluð inn auk þess sem dregið er úr minni línunnar.
Opti hjólin eru öll með ,,Power Matrix Drag System“ sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrir finnst í veiðihjólum. Bremsukerfið tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur. Hjólin og spólurnar eru framleidd úr renndu áli en aðrir hlutir eru úr ryðfríu stáli og sérmeðhöndluðu áli.
Loop Opti eru söluhæsta Loop hjólið á Íslandi enda stílhreint útlit þess heillandi og gæðin mikil. Loop Opti eru fáanleg í mörgum stærðum, fyrir einhendur, switch-stangir og tvíhendur.
Loop Z1 9' #5
Guideline LPX Nymph 10,2' #3
Guideline ULS 2.0 Switch-stöng 10,6' #6
Guideline LPX Tactical 9' #6
CND Nordic 13' #8/9
CND Gravity 15' #9/10
Leech ATW2 - Intro - Copper
CND Gravity 9' #8
Loop ZT 12,2' #6
Loop Z1 12,4' #7
Loop 7X 10' #7
Leech X Current - Performance - Yellow
Guideline LPX Chrome 12,3' #6/7
Leech gleraugnahulstur (hard)
Leech ATW6 Blue - Intro - Smoke
Loop Opti Speedrunner - Black 














