Frábær skyrta frá Loop sem hönnuð er til alhliða nota, í útileguna, veiði eða aðra útivist. Í hana er notuð evrópsk ullarblanda sem ásamt nýrri framleiðslutækni skapar þessa einstaklega hlýju og þægilegu veiðiskyrtu.
Hægt að klæðast skyrtunni einni og sér, en hana má einnig nota sem jakka. Hún er fullkomin í fluguveiðina enda með tveimur rúmgóðum vösum að framan, til að geyma smáhluti og flugubox. Skyrtan er með smellutölum sem hneppa má eftir hitastigi hverju sinni.