Loop hefur um árabil lagt metnað sinn í framsækna hönnun, þróun og framleiðslu á hágæða fluguveiðistöngum. Nú hefur fyrirtækið sett á markað sína mögnuðustu framleiðslu til þessa; hinar ótrúlegu Loop 7X flugustangir.
7X stangarlínan markar tímamót í hönnun fluguveiðistanga því ólíkt hefðbundnum stöngum er hún ekki hringlótt heldur sjöstrend, þ.e. með sjö hliðar. Þessi einkaleyfisbundna framleiðsla býr yfir gríðarlegu afli, veitir ótrúlega nákvæmni og hámarkar orkunýtingu. 7X er sannkölluð bylting, en kasteiginleikar stangarinnar eru einstakir vegna þeirra kosta sem lögun stangarinnar skilar.
7X hönnunin með sinni 2-3-2 uppbyggingu dregur úr þeim neikvæðu áhrifum sem hefðbundin hringlaga hryggjarstykki hafa óhjákvæmilega. Hönnunin leiðir til þess að ferill stangarinnar er ávallt jafn, óháð því hvaða kasttækni er beitt. 7X stangirnar veita jafnt afl og nákvæmni, jafnvel með bakhandar- eða hliðarköstum. Til einföldunar má segja að stöngin vinni jafn vel, óháð því á hvaða ferli kastað er.
Loop 7X stangirnar eru bæði léttari og sterkari en stangir með hefðbundinni hringlaga uppbyggingu og tryggja þær skilvirkari orkuflutningi. Það leiðir af sér meiri nákvæmni, betri framsetningu, bætta frammistöðu og fjölhæfni. 7X eru einhverjar mögnuðustu stangir sem Loop hefur framleitt. Ótrúlegur kraftur án þess að mýkt, nákvæmni og tilfinningu sé fórnað. Án nokkurs vafa einhver mest sannfærandi nýjung á sviði fluguveiði sem fram hefur komið í langan tíma.
Smith Creek Middle Fork Fly Patch - Flugugeymsla
GL Áhaldaspóla
Loop Evotec G5 8/10
Loop Classic 8/11
Loop Z1 14' #9
Loop Opti Rapid - Black
Rapala Laxaháfur M
Loop Evotec G5 6/8
Loon Sink Fast - Hreinsiefni fyrir sökklínur
Loop X10 Veiðigleraugu Copper/Green
Echo Base 2/3
Loop Q 6/8
Loop 7X 9,6' #6
Costa Panga Gold Veiðigleraugu 580G
Loop Opti Rapid - Mist Silver
Loop 7X 9' #5
Nám REN 14' #9
Loon UV ljós og lím
GL Áhaldaspóla
Leech ATW1 - Intro - Yellow
Loon Tip Toppers Tökuvarar Small
Echo Lift 9' #7
Loop 7X 10' #6 












