Leech X Fishpro Yellow eru Performance-gleraugu hönnuð fyrir þá sem vilja einbeita sér að veiðinni án truflunar frá glampa eða hliðarljósi. Þau eru með breiðum, færanlegum hliðarskermum sem hindra ljós frá hliðum – og hjálpa þér að viðhalda fókus í öllum veðuraðstæðum, óháð sólarstöðu.
Linsan er gul með silfurspegli og úr pólaríseruðu polycarbonate (PC), sem veitir skýra og bjarta mynd, sérstaklega í flötum birtuskilyrðum og á skýjuðum dögum. Hún er húðuð með vatnsfælnu yfirborði og rispuvörn til að tryggja góða endingu og sjón alla veiðiferðina.
Umgjörðin eru úr TR90 plasti sem er slitsterkt og sveigjanlegt efni. Gúmmí á spöngum og loftað nefstykki tryggja að gleraugun sitji þægilega og örugglega allan daginn – án þess að renna til eða þrýsta. Stór linsuflötur býður upp á vítt sjónsvið og hentar vel fyrir stærra andlitsfall eða fyrir þá sem einfaldlega kjósa víðari sjón. Gleraugun koma með aukaskermi sem hægt er að skipta um eftir þörfum.
Helstu eiginleikar:
- Performance-lína: hámarks vörn og skýrleiki við erfiðar birtuaðstæður
- Pólaríseruð PC-linsa – vörn gegn glampa og björt, skýr mynd
- TR90 bioplast umgjörð – sveigjanleg og endingargóð
- Gúmmí á nefstykki og á spöngum – eykur stöðugleika og þægindi
- Loftað nefstykki – minnkar móðu og bætir öndun
- Breiðir, færanlegir hliðarskermar – hindra ljós frá hliðum
- Linsulitur: Gulur með silfurspegli – bætir skyggni í flötum birtuskilyrðum og eykur skerpu á skýjuðum dögum
- Meðfærileg hönnun með víðu sjónsviði
- Aukaskermar fylgja með
Guideline Elevation 9' #6
Costa Grand Catalina Veiðigleraugu 580G
Loop Z1 Tvíhendupakki 12,4' #7
Fishpond Horse Thief Tote Duskwood - Veiðitaska
Echo Lift 9' #7
Guideline LPX Tactical 9,9' #5
Wapsi Ostrich Mini Plumes
Loop Opti Megaloop - Black
Loop 7X 14' #9
Loop Classic 8/11
Nám 12,3' #7/8
Vatnsdalsá
Patagonia Stealth Switch Pack 3L Veiðitaska - G. Green
Opinel Trekking N°8 Dark Blue Vasahnífur
SALAR Daisy Black THREE
Fishpond Thunderhead Eco Sling Shale - Axlartaska
Loop Evotec G5 4/6
Leech Cover - Intro - Yellow (Yfirgleraugu) 










