Laerdal Vöðlupakki III er góður kostur fyrir veiðikonur sem vilja þægilegar vöðlur með góðri hreyfigetu og sterkari vöðluskó frá Korkers. Laerdal vöðlurnar eru hannaðar sérstaklega fyrir konur og sameina léttleika, gott snið og álagsþolið efni þar sem mest reynir á.
Efri hluti vaðlanna er úr þriggja laga efni sem heldur þeim léttum og þægilegum í notkun. Neðri hlutinn er úr fjögurra laga efni sem eykur endingu á álagssvæðum, sérstaklega þegar gengið er um gróft undirlag eða vaðið í krefjandi aðstæðum. Sniðið er lagað að kvenlíkama, vöðlurnar sitja vel yfir bringu og mittið er stillanlegt svo auðvelt sé að aðlaga þær að líkama og klæðnaði.
Laerdal má nota sem hefðbundnar brjóstvöðlur en einnig sem mittisvöðlur þegar hlýtt er í veðri eða meiri hreyfigeta hentar betur. Framan á þeim er rúmgóður vasi sem fellur út þegar hann er opnaður og fyrir aftan hann er fóðraður vasi til að verma hendur. Innbyggðar festingar fyrir veiðitól, til dæmis taumaklippur og losunartöng, gera búnaðinn aðgengilegan við ána.
Sokkarnir eru úr náttúrulegum gúmmíefnum og mótaðir til að krumpast síður inni í skónum. Áfastar sandhlífar falla vel yfir flesta vöðluskó og hjálpa til við að halda sandi og smásteinum frá. Sterkt nælonbelti fylgir og hægt er að staðsetja það eftir þörfum. Vöðlurnar eru fáanlegar bæði í Regular og Queen-stærðum.
Í pakkanum er val á milli tveggja vöðluskóa frá Korkers. Darkhorse W’s eru hannaðir til að henta betur fótum kvenna og veita góðan stuðning, örugga festu og þægindi yfir langan dag. Þeir eru með M4 BOA® vírakerfi sem gerir auðvelt að herða skóna og losa þá, auk útskiptanlegra OmniTrax-sóla þar sem fylgja bæði gúmmí- og filtbotnar.
Devils Canyon skórnir eru léttir, þægilegir og veita góðan ökklastuðning. Þeir eru með styrkingum á tá og hæl og frárennslisrásum sem losa vatn fljótt úr skónum þegar komið er upp á bakka. Báðir skórnir henta vel fyrir veiðar þar sem þægindi, stuðningur og gott grip skipta máli.
Loon Small Caddy Smábrúsafesting
Guideline NT11 Fast Full Flex 12' #7/8 - 6 pc
Fishpond Switchback Wading System 2.0 - Mittistaska
Nám REN 9,9' #7
Patagonia Stealth Pack S. Green Bakpoki
Patagonia Guidewater S. Green - Vatnsheld Mittistaska
Guideline Rivolt 9' #6 

































