IG Neoprene Camo Vöðlur

IG 2.0 Neoprene Camo eru hlýjar og sterkar vöðlur úr hágæða ECO-LIMESTONE neoprene, með camo mynstri sem hentar vel í skotveiði. Þær eru gerðar fyrir íslenskar aðstæður þar sem kuldi, bleyta og mikið álag koma við sögu og eru stígvélin með gúmmísóla.

39.900kr.

IG 2.0 Neoprene Camo eru hlýjar og sterkar neoprene vöðlur með camo mynstri. Þær eru framleiddar úr hágæða ECO-LIMESTONE neoprene og henta vel í íslenskar aðstæður, hvort sem þær eru notaðar í vatnaveiði, skotveiði eða aðra útiveru þar sem kuldi, bleyta og slitþol skipta miklu máli.

Þetta er ný og endurbætt kynslóð af IG vöðlum, hugsuð fyrir þá sem vilja traustan búnað í erfiðar aðstæður. ECO-LIMESTONE neoprene efnið er sterkt og sveigjanlegt, heldur vel á hita og gerir vöðlurnar þægilegar í notkun yfir langan tíma.

Vöðlurnar nýtast vel við veiðar í köldu vatni, á votlendi og í aðstæðum þar sem mikið reynir á búnaðinn. Camo útfærslan gerir þær sérstaklega hentugar í skotveiði og aðra útiveru þar sem gott er að falla betur inn í umhverfið. Stígvélin eru með gúmmísóla sem má negla.

Helstu eiginleikar

  • Hágæða ECO-LIMESTONE neoprene
    • Hlýjar og þægilegar í köldu vatni
    • Sterkar vöðlur með miklu slitþoli
    • Camo mynstur fyrir skotveiði
    • Stígvél með gúmmísóla
    • Henta vel fyrir íslenskar aðstæður
    • Góðar í stangaveiði, skotveiði og krefjandi útiveru

ATH litlar stærðir

Athugið að búkstærðirnar eru frekar litlar. Við mælum með að velja að minnsta kosti einu númeri stærra en þú notar venjulega. Dæmi: Ef þú notar skóstærð 44 og ert venjulega í stærð L í fatnaði, mælum við með að velja 44-XL.