Hofsá – Flotlína

Hofsá er vönduð, samfelld tvíhendulína fyrir litlar og meðalstórar laxveiðiár. Hún er ögn þyngri en hefðbundinn kvarði, sem tryggir öfluga hleðslu og auðveld köst. Línan nýtist bæði á styttra og lengra færi. Hún leggst mjúklega á vatnsflötinn og er því kjörin við krefjandi aðstæður.

15.900kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Hofsá – Flotlína

Hofsá er vönduð, samfelld tvíhendulína sem sérframleidd er fyrir Veiðiflugur. Hún er hönnuð með laxveiðiár á borð við Hofsá, Selá og Miðfjarðará í huga – ár þar sem gjarnan er veitt á flottúpur og smáflugur sem ýmist eru látnar reka með straumnum eða strippaðar alveg inn að fótum veiðimannsins.

Línan er ögn þyngri en hinn hefðbundinn þyngdarkvarði segir til um, sem skilar öflugri hleðslu með lágmarks fyrirhöfn. Hún er afar aðgengileg og hentar veiðimönnum á öllum reynslustigum. Línan leggst mjúklega á vatnsflötinn, sem getur skipt sköpum við krefjandi aðstæður – til dæmis í logni, mikilli birtu eða við lága vatnsstöðu.

Þetta er flotlína sem nýtist sérstaklega vel í stuttum köstum, en stendur sig líka frábærlega þegar kasta þarf lengra. Hún er hugsuð til notkunar með löngum frammjókkandi taumum og hentar einkar vel í litlar og meðalstórar ár. Hofsá er fjölhæf lína sem nýtist bæði í undirhandarköst og yfirhandarköst.

Rennilínan er í appelsínugulum lit sem auðvelt er að sjá, en skothausinn í látlausum grænum tóni sem truflar síður fisk. Línan er fáanleg bæði fyrir switch-stangir og hefðbundnar tvíhendur, í línuþyngdum #6–#9.

Helstu eiginleikar:

  • Frábær fyrir stutt og meðallöng köst með lágmarks fyrirhöfn
  • Öflug hleðsla og árangursrík línustjórnun
  • Nákvæm og þægileg í notkun
  • Sterkar, grannar lykkjur á báðum endum
  • Línuþyngd áletruð á kápu línunnar
  • Rennilína í skærum lit sem auðvelt er að sjá