Guideline NT11 Fast Full Flex 13′ #8/9 er öflug og fjölhæf tvíhenda sem er hönnuð fyrir veiðimenn sem vilja djúpa tilfinningu í kastinu án þess að fórna krafti eða nákvæmni. Hún beygir sig langt niður í skaftið og gefur skýra tilfinningu í gegnum allt kastferlið, en skilar samt miklum línuhraða þegar hún losar kraftinn.
Stöngin svignar langt niður í handfang og minnir að hluta á klassískar parabolic-stangir, en með nútímalegri svörun og hraða. Þetta gefur veiðimanninum meiri tíma til að stilla upp kastinu og gerir hana fyrirgefandi þegar tímasetning er ekki fullkomin. Þegar kastið klárast kemur skýrt og kraftmikið „kick“ sem skilar línunni af mikilli nákvæmni.
Stífari toppurinn hjálpar til við að halda góðri stjórn á línunni og lyfta henni úr vatni, jafnvel þegar veitt er með lengri spey-línum eða þyngri sökklínum. Hún vinnur sérstaklega vel með nútíma skotlínukerfum og skothausum og ræður auðveldlega við mismunandi veiðiaðstæður.
Þetta er stöng sem nær yfir stórt svið í laxveiði, allt frá minni og meðalstórum ám upp í stærri ár þar sem þarf meiri kraft. Hún nýtist einnig vel í veiði á stórum urriða og sjóbirtingi þar sem bæði nákvæmni og afl skipta máli.
Uppbygging stangarinnar byggir á háþróuðum efnum sem skila bæði léttleika og miklum styrk. Hún er hönnuð til að standast mikla notkun og halda eiginleikum sínum, jafnvel undir miklu álagi.
Guideline NT11 Fast Full Flex 13′ #8/9 er stöng fyrir veiðimenn sem vilja finna stöngina vinna í hverju kasti, en samt hafa afl til að takast á við stærstu fiskana. Hún er nákvæm, kraftmikil og einstaklega skemmtileg í notkun.
Helstu einkenni
• Djúp sveigja sem gefur meiri tilfinningu og tíma í kasti
• Hröð svörun með kraftmiklu „kicki“
• Stífari toppur sem bætir stjórn og lyftigetu
• Hentar vel í allar gerðir spey-kasta
• Öflug og fjölhæf stöng fyrir laxveiði
Patagonia Stealth Pack S. Green Bakpoki
SALAR Daisy Burnt Bronze THREE
Echo Base 2/3
Loop Evotec G5 9/13
Loop Opti Gyre - Black
SALAR Daisy Black FOUR
Loop Opti Strike - Black
Loop Opti Rapid - Black
Loop Opti Creek - Black
Loop Classic 8/11
Loop Classic 10/13
Patagonia Guidewater S. Green - Vatnsheld Mittistaska
Loop Classic 7/9
Loop Opti Megaloop - Black
Loop Z1 13,2' #8 










