LPX Tactical eru háþróaðar silungsveiðistangir úr smiðju Guideline. Þær hafa skýra og mjög nákvæma virkni sem losnar úr læðingi smám saman eftir því sem stöngin er hlaðin meira. Stangirnar eru tiltölulega hraðar með djúpri ¾ hleðslu og eru einstaklega stöðugar á kastferlinum. Þær eru mjög aðgengilegar og henta veiðimönnum á öllum kunnáttustigum. Þegar kastað er á styttra færi veitir toppurinn og miðjuhluti stangarinnar veiðimanninum mikla næmni, sem er mikilvæg við viðkvæmar aðstæður. Þegar kastað er á lengra færi virkjast neðri hluti stangarinnar og veitir allan þann kraft sem nauðsynlegur er. LPX Tactical eru þrátt fyrir hagstætt verðlag framúrskarandi stangir. Þær eru afskaplega liprar, en um leið nægjanlega stífar til að takast á við lengri köst og mikinn vind. Þrátt fyrir það fara þær vel með örgrönnum taumum þegar aðstæður kalla á fíngerða framsetningu. Stangirnar eru ofurléttar, en til marks um það vegur 9 feta stöng fyrir línu #5 aðeins 71 gramm!
LPX Tactical 9 feta einhendur
Þær stangir sem eru 9 fet að lengd eru ofurléttar og henta þeim sem kjósa klassískar flugustangir hvað lengd varðar. Þær eru gefnar upp fyrir rétta línuþyngd og veita notandanum eftirsóknarverða léttleikandi tilfinningu. Stangirnar eru ótrúlega fjölhæfar og nýtast í ólíkum aðstæðum. Þær verða fyrir minni áhrifum af vindi en 9,9 feta stangirnar og eru ögn hraðari. Línuþyngdir #2-3 henta frábærlega í púpu- og þurrfluguveiði þar sem fíngerð framsetning og grannir taumar skipta höfuðmáli. Stangir í línuþyngd #4-5 eru fjölhæfari og nýtast í púpur og þurrflugur við hverskyns aðstæður. Eiginleikar þeirra koma bersýnilega í ljós á lengra sem skemmra færi og með ólíkum gerðum flugukasta. Línuþyngd #6 er heppileg fyrir þá sem veiða á opnum svæðum þar sem vindur getur orðið mikill. Sú stöng nýtist vel í púpuveiði en kastar þó straumflugum einnig. Línuþyngd #7 er öflugasta stöngin í seríunni. Hún er hönnuð til að kasta stórum straumflugum og fer létt með þyngstu sökklínur.
Ítarupplýsingar
- Háþróuð A.P M4.0™ koltrefjauppsetning.
- Frábærir kasteiginleikar.
- Fer vel með örgranna tauma við viðkvæmar aðstæður.
- Mött áferð stangarinnar sér til þess að sólarljós endurkastist ekki á veiðistaðinn.
- Náttúrulega grátt útlit með grænum blæ og dökkgrænum vafningum.
- Handfang úr vönduðum korki með háum þéttleika.
- Hjólasæti með viðarinnleggi og ágreyptu Tactical-merki.
- Rafhúðaðir málmhlutar eru með mattri áferð til að endurkasta síður sólarljósi.
- Þökk sé nýrri tækni eru stangirnar einstaklega léttar.
- Léttar lykkjur úr títani með zirconia-innleggi.
- Smærri lykkjur eru PVD-húðaðar með mattri grárri áferð.
- Stöngin kemur í stangarsokk og hólk sem unninn er úr endurunnum efnum.
C.A.P M4.0 tæknin
C.A.P M4.0™ koltrefjauppsetningin skapar einstaka sveigju með hraðri endurheimt og mikilli nákvæmni. C.A.P tæknin er með flóknu áslægu mynstri, CAP (e. Complex Axial Pattern) sem parað er við einátta koltrefjauppbyggingu. Með tækninni eru koltrefjalög lögð upp í mismunandi horn hvert á annað til að hámarka styrk og stöðugleika í allar áttir. Í einátta óofnu koltrefjamynstri liggja allar trefjarnar í einni samsíða stefnu, sem tryggir hámarksstyrk stangardúksins. M4.0™ er kvoðan eða plastefnið (e. Resin) sem notað er í þessháttar uppbyggingu. Vegna þeirra eiginleika sem efnið hefur er fyllt betur í eyður stangardúksins en með öðrum hefðbundnum efnum sem leiðir af sér meiri styrk. Það dregur einnig úr magni plastefnisins sem annars þyrfti að nota sem endurspeglast í því hve léttar stangirnar eru.
Fishpond Henry's Fork Hat - Honey Derhúfa
Guideline Badge Trucker Cap Heat Derhúfa
Fishpond Thunderhead Eco Sling Yucca - Axlartaska
Guideline Chrome Trucker Derhúfa
Loon Infinity UV ljós
Guideline NT11 Switch-stöng 11,6' #8/9 - 6 pcs
Leech Eagle - Pro - Yellow
Guideline Double Side Stillwater Flugubox
Patagonia Stealth Pack S. Green Bakpoki
Fishpond River Bank Backpack Duskwood - Bakpoki
Patagonia Take a Stand T. Blue Derhúfa
Patagonia Fly Catcher Hat C. Brown Derhúfa
Guideline ULS 2.0 Switch-stöng 10,6' #6
Patagonia Broadcaster Hat W. Stone Derhúfa
Loon Water Based Thinner - Þynnir
Loon Nano Light UV ljós
Fishpond Tacky Pescador Leaflet Innlegg
Guideline Salmon Suede Derhúfa - Tan
Loon Fly Line Cleaner - Línuhreinsiefni
Loop 7X 10' #6
Loon Krókabox / Kónabox
Loon UV Knot Sense - Hnútalím
Loon Soft Head Clear - Hnýtingalakk
Fishpond Honcho Reel Case - Hjólataska
Loop 7X 9' #8
Fulling Mill Guide Flugubox - Grey
Loop Fly Rods & Reels Derhúfa
Guideline GL Logo Cap G. Black Derhúfa
Loop Fly Trucker Cap River Green Derhúfa
Loon Top Ride - Þurrfluguduft
Guideline Neck Gaiter Höfuðhlíf - Dark Mustard
Guideline Coastal Trucker Derhúfa
Fishpond Thunderhead Eco Yucca - Bakpoki
Loon Tying Mat - Fluguhnýtingamotta
Guideline LPX Nymph 10,8' #3 











