LPX Chrome fluguveiðipakkinn frá Guideline er sérlega hentugur í laxveiðina. Hann samanstendur af LPX Chrome switch-stöng, Halo fluguveiðihjóli, undirlínu og Sandá tvíhendulínu í einni samþættri heild. Ef óskað er eftir annarri línu má taka það fram í skilaboðareitnum í körfunni.
LPX Chrome switch-stangirnar byggja á nýjustu hönnun Guideline. Þær eru með ¾ djúpri hleðslu sem virkjast snemma í kastinu án þess að draga úr hraða eða svörun. Þessar stangir eru bæði léttar og nákvæmar, með frábæra stöðugleika og viðbragðsflýti sem gerir veiðimanni kleift að tengjast kastinu með óvenjulegri nánd. Á 11,7 fetum eru þær í raun stuttar, kraftmiklar tvíhendur – frábær kostur fyrir veiði á lax og sjóbirting í íslenskum ám.
Halo fluguveiðihjólið frá Guideline er úr hágæða renndu áli, með lokaðri breiðkjarna-hönnun sem kemur í veg fyrir að línan festist og tryggir skjótan inndrátt. Diskabremsukerfið er vatnshelt, öflugt og krefst lítillar umhirðu – tilbúið fyrir krefjandi aðstæður.
Með pakkanum fylgir Sandá – fjölhæf og vönduð tvíhendulína þar sem skothaus og rennilína eru sameinuð í eina samfella án samskeyta. Hún er þróuð með breytilegar veiðiaðstæður í huga og hentar einstaklega vel fyrir köst bæði á stuttu og meðallöngu færi. Sandá virkar jafn vel með smáflugum og túpum, og skilar mjúkum, stöðugum köstum með mikilli stjórn – hvort sem notuð eru veltiköst eða hefðbundin yfirhandarköst.
Ítarupplýsingar um flugustöngina
Leyndarmálið á bak við frábrugðna virkni stanganna er ný tækni frá Guideline sem þeir nefna C.A.P M4.0™. Um er að ræða háþróaða koltrefjauppsetningu sem skapar einstaka sveigju stanganna. Þeim er best lýst sem framsæknum miðlungshröðum (e. Medium Fast) stöngum með hraðri endurheimt (e. Fast Recovery). Toppurinn er afar stöðugur og nær að framkalla þröngan línubug, auk þess sem hann er nægjanlega öflugur til að lyfta þungum sökklínum. Meðan á flugukastinu stendur tengist veiðimaðurinn neðri hluta stangarinnar sem skilar ótrúlegum áhrifum þegar stöngin er stöðvuð í fram- og afturkastinu. Þetta gerir það að verkum að unnt er að ná löngum köstum með afar litlu afli. Hliðarstöðugleiki LPX Chrome gerir það að verkum að flugulínan fylgir stönginni einkar vel þegar henni er sveiflað og snúið í kastinu. Þessir eiginleikar leiða af sér nákvæmari fluguköst, aukinn línuhraða og betri línubug. Þetta er sannarlega ný virkni sem markar ákveðin þáttaskil til framtíðar hjá Guideline. LPX Chrome switch-stangirnar skarta úrvals handfangi úr fyrsta flokks korki. Til að tryggja langa endingu er það búið sérstökum gúmmí-styrkingum sem munu standa tímans tönn.
- Háþróuð A.P M4.0™ koltrefjauppsetning.
- Miðlungshröð með uppbyggingu sem hraðar endurheimt.
- Fjölhæf stöng sem ræður við allar línugerðir.
- Ofurléttar með lágri sveifluþyngd sem gerir þér kleift að veiða lengi án þess að þreytast.
- Blágrá gljáandi áferð með samsvarandi vöf.
- Hágæða korkur með sérstakri styrkingu.
- Rafhúðað hjólasæti með einstöku álagsþoli.
- Léttar og tæringarþolnar lykkjur úr títani með zirconia-innleggi.
- Efri lykkjur eru PVD-húðaðar með mattri grárri áferð.
- Stöngin kemur í stangarsokk og hólk sem unninn er úr endurunnum efnum.
C.A.P M4.0 tæknin
C.A.P M4.0™ koltrefjauppsetningin skapar einstaka sveigju með hraðri endurheimt og mikilli nákvæmni. C.A.P tæknin er með flóknu áslægu mynstri, CAP (e. Complex Axial Pattern) sem parað er við einátta koltrefjauppbyggingu. Með tækninni eru koltrefjalög lögð upp í mismunandi horn hvert á annað til að hámarka styrk og stöðugleika í allar áttir. Í einátta óofnu koltrefjamynstri liggja allar trefjarnar í einni samsíða stefnu, sem tryggir hámarksstyrk stangardúksins. M4.0™ er kvoðan eða plastefnið (e. Resin) sem notað er í þessháttar uppbyggingu. Vegna þeirra eiginleika sem efnið hefur er fyllt betur í eyður stangardúksins en með öðrum hefðbundnum efnum sem leiðir af sér meiri styrk. Það dregur einnig úr magni plastefnisins sem annars þyrfti að nota sem endurspeglast í því hve léttar stangirnar eru.
Reiða Öndin - Stuðningssarpur
Veniard Mallard Duck Wing Quills Blue/White Tip
Loon Rouge Skæratöng
Wapsi Ostrich Mini Plumes
Áhaldaslá á þvingur
Stækkunargler með þvingu
Veniard Teal Duck Flank Feathers
Stonfo Elite Hnýtingagálgi
Loop ZX Einhendupakki 10' #6
Frödin FITS Túpunál
Loon UV Fluorescing Clear Finish - Lakk
Krinkle Mirror Flash
Stonfo áhald fyrir hálfhnútinn
Veniard Hare Mask
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #7
Tube Fly Tool - Túputól
CND Gravity 12,7' #8/9
Semperfli Ice Dubbing Magnpakkning
Tacky Original Flugubox 2X
Fishpond Dakota 45" stanga- og hjólataska
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #2
Zap-A-Gap Lím með bursta
Loon Ergo Hair 4,5“ Hnýtingaskæri
Collectall Ruslakarfa
Loon Easy Dry - Þurrfluguefni
Stonfo Hair Stacker - Hárjafnari
Loon Water Based Thinner - Þynnir
Stonfo Borðfótur
CND Nordic 14' #9/10
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #5
Veniard Hen Pheasant Shoulder Feathers
Morsetto Flylab Hnýtingaþvinga
Loop ZX Einhendupakki 10' #8
Hnýtingafótstykki
C&F Hnýtingagálgi
Loon Áhaldasett
Echo Lift 8' #4
Guideline LPX Nymph Einhendupakki 10,2' #3 




















