Guideline LPX Chrome Einhendupakki 9,9′ #6

> Stöng sem hentar við fjölbreyttar aðstæður
> Fullkomin í staðbundinn urriða og sjóbirting
> Í pakkanum er Halo hjól og Bullet 2.0 flotlína
> Vegur 90 gr. – línuþyngd 13-15 gr.

128.900kr.

Vinsamlega veldu inndrátt fluguhjólsins:

Insufficient stock

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Frábær fluguveiðipakki frá Guideline sem hentar í laxveiði og í veiði á stærri urriða, staðbundnum sem sjógengnum. Stangarpakkinn inniheldur LPX Chrome flugustöng, Halo fluguveiðihjól, undirlínu og Bullet 2.0 flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.

LPX Chrome flugustangirnar eru hannaðar og framleiddar með glænýrri virkni frá Guideline. Þær eru með ¾ djúpri hleðslu og afl sem nýtist snemma í kastinu án þess að hraða stanganna sé fórnað. Þær eru léttleikandi, búa að miklum stöðugleika og með viðbragðsflýti sem tengir notandann við köstin á alveg nýjan hátt. LPX Chrome eru kraftmiklar stangir sem  hannaðar eru til veiða í ám þar sem bráðin er urriði, lax eða sjóbirtingur. Þær eru af miklum gæðum og búa að mörgum kostum sem sjaldnast sjást í stöngum á þessu verðbili.

Halo fluguveiðihjólið sem fylgir með í stangarpakkanum er frá Guideline og er framleitt er úr renndu áli. Það er tiltölulega eðlislétt og er algjörlega lokað svo ekki er hætta á að línan festist á milli hjólsins og spólunnar. Halo er með vatnsþéttu og öflugu diskabremsukerfi sem er svo gott sem viðhaldsfrítt. Hjólið er breiðkjarna (e. full frame) sem gerir veiðimönnum kleift að ná slaka inn hratt, auk þess sem hönnunin dregur úr líkum á línuminni.

Hjólið er uppsett með undirlínu og Bullet 2.0 flotlínunni. Hún nýtist í hverskonar veiði og auðveldar veiðimönnum lífið í krefjandi aðstæðum. Línan stendur svo sannarlega undir nafni enda skýtur hún stórum flugum og vinnur vel móti vindi. Jafnvægi línunnar er afar gott og þrátt fyrir tiltölulega stuttan haus fatast henni ekki flugið. Hauslengdin er 9,25 metrar en uppbygging línunnar gerir hana einkar fjölhæfa auk þess sem hún fyrirgefur kastmistök. Bullet línunni má kasta langt án mikillar fyrirhafnar og hentar vel í yfirhandarköst, en ekki síður veltiköst.

Appelsínugulur litur línunnar nær frá rennilínu inn á aftari hluta skothaussins og auðveldar veiðimanni lengdarstjórnun og hleðslu stangarinnar. Bullet 2.0 er með grönnum lykkjum á báðum endum. Línan nýtur sín hvað best þegar henni er aðeins falskastað einu sinni, kjörin fyrir þá sem vilja að flugan sé meira í vatninu en loftinu.

Ítarupplýsingar um flugustöngina

Leyndarmálið á bak við frábrugðna virkni stanganna er ný tækni frá Guideline sem nefnd er C.A.P M4.0™. Um er að ræða háþróaða koltrefjauppsetningu sem skapar einstaka sveigju stanganna. Þeim er best lýst sem framsæknum miðlungshröðum (e. Medium Fast) stöngum með hraðri endurheimt (e. Fast Recovery). Toppurinn er afar stöðugur og nær að framkalla þröngan línubug, auk þess sem hann er nægjanlega öflugur til lyfta þungum sökklínum. Meðan á flugukastinu stendur tengist veiðimaðurinn neðri hluta stangarinnar sem skilar ótrúlegum áhrifum þegar stöngin er stöðvuð í fram- og afturkastinu. Þetta gerir það að verkum að unnt er að ná löngum köstum með afar litlu afli. Hliðarstöðugleiki LPX Chrome gerir það að verkum að flugulínan fylgir stönginni einkar vel þegar henni er sveiflað og snúið í kastinu. Þessir eiginleikar leiða af sér nákvæmari fluguköst, aukinn línuhraða og betri línubug. Þetta er sannarlega ný virkni sem markar ákveðin þáttaskil til framtíðar hjá Guideline.

Hjólasæti LPX Chrome flugustanganna er sérhannað og er korkurinn í handfanginu fyrsta flokks. Til að tryggja langa endingu er hjólasætið búið sérstökum gúmmí-styrkingum sem munu standa tímans tönn. Stangirnar eru 9,9 fet að lengd og eru smíðaðar til að bera stórar flugur þegar veiða á stóra fiska. Stangirnar eru gefnar upp fyrir tiltekna línuþyngd sem er á réttum kvarða og því þarf ekki að yfirhlaða þær með þyngri línu.

  • Háþróuð A.P M4.0™ koltrefjauppsetning.
  • Miðlungshröð með uppbyggingu sem hraðar endurheimt.
  • Fjölhæf stöng sem ræður við allar línugerðir.
  • Ofurléttar með lágri sveifluþyngd sem gerir þér kleift að veiða lengi án þess að þreytast.
  • Blágrá gljáandi áferð með samsvarandi vöf.
  • Hágæða korkur með sérstakri styrkingu.
  • Rafhúðað hjólasæti með einstöku álagsþoli.
  • Léttar og tæringarþolnar lykkjur úr títani með zirconia-innleggi.
  • Efri lykkjur eru PVD-húðaðar með mattri grárri áferð.
  • Stöngin kemur í stangarsokk og hólk sem unninn er úr endurunnum efnum.

 

C.A.P M4.0 tæknin

C.A.P M4.0™ koltrefjauppsetningin skapar einstaka sveigju með hraðri endurheimt og mikilli nákvæmni. C.A.P tæknin er með flóknu áslægu mynstri, CAP (e. Complex Axial Pattern) sem parað er við einátta koltrefjauppbyggingu. Með tækninni eru koltrefjalög lögð upp í mismunandi horn hvert á annað til að hámarka styrk og stöðuleika í allar áttir. Í einátta óofnu koltrefjamynstri liggja allar trefjarnar í einni samsíða stefnu, sem tryggir hámarksstyrk stangardúksins. M4.0 er kvoðan eða plastefnin (e. Resin) sem notuð er í þessháttar uppbyggingu. Vegna þeirra eiginleika sem efnið hefur er fyllt betur í eyður stangardúksins en með öðrum hefðbundnum efnum sem leiðir af sér meiri styrk. Það dregur einnig úr magni plastefnisins sem annars þyrfti að nota sem endurspeglast í því hve léttar stangirnar eru.