Flottur fluguveiðipakki sem inniheldur Elevation flugustöng, Nova fluguveiðihjól, undirlínu og Bullet+ flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Elevation flugustangirnar eru afar léttar meðalhraðar stangir sem gerðar eru fyrir breiðan hóp veiðimanna. Hönnun og framleiðsla stanganna er um margt framúrstefnuleg og stangarpartar þeirra eru umtalsvert umhverfisvænni en gengur og gerist. Þetta er sú stefna sem Guideline hefur tekið í átt að nútímalegri framleiðsluþáttum. Stangirnar eru framleiddar eins efnislitlar og kostur er án þess að það komi niður á kasteiginleikum eða styrk. Toppurinn er afar næmur en um leið stöðugur og hleðst stöngin með jöfnu átaki niður í skaft. Hraði stangarinnar er þannig heppilegur fyrir þá sem eru að byrja í fluguveiði, en stöngin fyrirgefur vel mistök á kastferlinum. Elevation eru nákvæmar stangir og með þeim er unnt að ná miklum línuhraða.
Stönginni fylgir Nova fluguveiðihjól frá Guideline, sem er framleitt úr endurunnum álsteypum og algjörlega án einnota plastefna. Hjólið er létt, stílhreint og hannað með áherslu á bæði umhverfisábyrgð og afköst. Bremsukerfið er öflugt og jafnt, með kolefnisskífum sem veita stöðugt viðnám undir miklu álagi. Hjólið er vatnshelt og með innbyggðu mótvægi sem tryggir jafnvægi í spólunni. Nova stendur fyrir nýja kynslóð veiðihjóla þar sem ending, áreiðanleiki og umhverfisvitund fara saman.
Á hjólinu er Bullet+ flotlína sem er uppfærð útgáfa af einni vinsælustu einhendulínu Veiðiflugna. Þrátt fyrir stuttan haus heldur hún góðu jafnvægi í lofti og skilar löngum og nákvæmum köstum með lágmarks áreynslu. Línan hentar í hefðbundin fluguköst sem og veltiköst og fellur mjúklega á vatnsflötinn. Hún virkar vel fyrir allar gerðir flugna, frá þurrflugum upp í keilutúpur, og er afar notendavæn með skýra litaskiptingu, ID-merki og lykkjur á báðum endum.
Elevation stangarpakkinn er virkilega athyglisverður og á afar sanngjörnu verði.
Fishpond Tacky Original RiverMag Flugubox
Loop Trak Tvíhendupakki 14′ #9
GL Áhaldaspóla
Loon Lochsa - Þurrflugugel
Fishpond San Juan Brjóstpoki
Fishpond Headwaters Terra Derhúfa
Loon Áhaldaspóla
Fishpond Burrito Vöðlutaska
Stonfo Áhaldasnúra
Loop Evotec G5 4/6
Patagonia Broadcaster Hat W. Stone Derhúfa
Lykkjunál
Loon Bio Glow - Tökuvari sem lýsir í myrkri
McLean Salmon Weigh Net XXL - Laxaháfur með Innbyggðri Vigt
Loop Logo Húfa Svört
Plaströr fyrir microtúpur
Fishpond Blizzard Kælitaska
Tacky Daypack Flugubox 2X
Echo Lift Einhendupakki 9' #7
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Fishpond Ridgeline Tech Pack - Bakpoki
Veniard Mallard Duck Drake Grey Flank Selected
Hnýtingafótstykki
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #3 


















