Flottur fluguveiðipakki sem inniheldur Elevation flugustöng, Nova fluguveiðihjól, undirlínu og Bullet+ flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Elevation 9′ #5 er meðalhröð stöng í silunginn sem hentar vel í léttar straumflugur og púpur. Hún sameinar næmni og afl með mýkri framsetningu og hentar einstaklega vel í veiði í minni og meðalstórum ám.
Elevation flugustangirnar eru afar léttar meðalhraðar stangir sem gerðar eru fyrir breiðan hóp veiðimanna. Hönnun og framleiðsla stanganna er um margt framúrstefnuleg en stangarpartar þeirra eru umtalsvert umhverfisvænni en gengur og gerist. Þetta er sú stefna sem Guideline hefur tekið í átt að nútímalegri framleiðsluþáttum. Stangirnar eru framleiddar eins efnislitlar og kostur er án þess að það komi niður á kasteiginleikum eða styrk. Toppurinn er afar næmur en um leið stöðugur og hleðst stöngin með jöfnu átaki niður í skaft. Hraði stangarinnar er þannig heppilegur fyrir þá sem eru að byrja í fluguveiði, en stöngin fyrirgefur vel mistök á kastferlinum. Elevation eru nákvæmar stangir og með þeim er unnt að ná miklum línuhraða.
Stönginni fylgir Nova fluguveiðihjól frá Guideline – ný kynslóð veiðihjóla sem hönnuð eru með sjálfbærni, endurunnu áli og engum einnota plastefnum. Hjólið býr að öflugum og sérsniðnum kolefnisbremsum sem stilltar eru fyrir hverja stærð og veita jafnt og öruggt viðnám allan bardagann. Nova hjólin eru einstaklega vönduð og fallega útfærð með nýrri hönnun sem tryggir stöðugleika og áreiðanleika.
Á hjólinu er Bullet+ flotlína sem byggir á grunni einnar vinsælustu línu Veiðiflugna – nú í uppfærðri útgáfu með mýkri og nákvæmari framsetningu. Línan er með stuttum og öflugum 9,25 metra haus sem hleðst hratt og kastar langt með lágmarks fyrirhöfn. Hún nýtist vel í þröngum aðstæðum þar sem bakkast er torvelt og hentar bæði í hefðbundin fluguköst og veltiköst. Grágrænn haus og skærgræn rennilína tryggja góða yfirsýn í vatni, og línan nýtist með öllum tegundum flugna – hvort sem um er að ræða þurrflugur, púpur eða keilutúpur.
Elevation stangarpakkinn er virkilega athyglisverður og á afar sanngjörnu verði. Hentar sérstaklega vel í fjölbreytta silungsveiði við íslenskar aðstæður.
Af flugum, löxum og mönnum
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #6
Loon Line Speed - Línubón
Taumaklippur
Loon Snake River Mud - Sökkefni
Acryl-þynnir
Loon Reel Lube - Hjólafeiti
Loon Caddy Smábrúsafesting
Loon Payetta Paste - Flotáburður
Veniard Mallard Duck Wing Quills Blue/White Tip
Loon Áhaldaspóla
Loon Fly Line Cleaner - Línuhreinsiefni
Acryl-flugulakk
Costa Peli Gold Veiðigleraugu 580G
Losunartöng
Stonfo Borðfótur
Loon Skæratöng
Dropper Festingar
Loon Deep Soft Weight - Sökkefni
Veniard Grey Partridge Neck Natural
Loon Easy Dry - Þurrfluguefni
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #6 

















