Flottur fluguveiðipakki sem inniheldur Elevation flugustöng, Nova fluguveiðihjól, undirlínu og Presentation+ flotlínu eða aðra sambærilega línu.
Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Elevation flugustangirnar eru afar léttar meðalhraðar stangir sem gerðar eru fyrir breiðan hóp veiðimanna. Hönnun og framleiðsla stanganna er um margt framúrstefnuleg en stangarpartar þeirra eru umtalsvert umhverfisvænni en gengur og gerist. Þetta er sú stefna sem Guideline hefur tekið í átt að nútímalegri framleiðsluþáttum. Stangirnar eru framleiddar eins efnislitlar og kostur er án þess að það komi niður á kasteiginleikum eða styrk. Toppurinn er afar næmur en um leið stöðugur og hleðst stöngin með jöfnu átaki niður í skaft. Hraði stangarinnar er þannig heppilegur fyrir þá sem eru að byrja í fluguveiði, en stöngin fyrirgefur vel mistök á kastferlinum. Elevation eru nákvæmar stangir og með þeim er unnt að ná miklum línuhraða.
Stönginni fylgir Nova fluguveiðihjól frá Guideline. Það er unnið úr endurunnum hráefnum, án einnota plastefna, og ber með sér nútímalega hönnun og mikinn endingarstyrk. Bremsukerfið er sérstillt eftir stærðum og tryggir stöðugan þrýsting allan tímann sem fiskur er þreyttur. Nova er sterkt, létt og umhverfisvænt hjól sem stenst krefjandi notkun.
Á hjólinu er undirlína og Presentation+ flotlína, sem hefur verið hönnuð með nákvæmni og fjölhæfni að leiðarljósi. Hún hentar vel í minni vötn og ár, sérstaklega þar sem lítið pláss er til bakkasts. Línan hleðst auðveldlega og kastar jafnt þurrflugum sem púpu með mikilli stjórn og mjúkri framsetningu. Hún er stöðug í lofti, með betri stjórn á lykkjum og meiri stífleika í flugi en áður, en er samt lipur í meðförum – einnig í köldu veðri.
Elevation stangarpakkinn með Nova hjóli og Presentation+ línu er virkilega athyglisverður kostur fyrir veiðimenn sem vilja gæði og frammistöðu á afar sanngjörnu verði.