Greenback eru flottir vöðluskór á frábæru verði, búnir fjölmörgum eiginleikum. Eins og aðrir skór frá Korkers eru þeir með útskiptanlegum sólum, en kaupunum fylgir stöðugur filtbotn. Aukalega er hægt að fá gúmmísóla, neglda filtsóla eða neglda vibram.
Greenback eru framleiddir úr fljótþornandi efnum og eru með sérstakar rásir í botni til að vatn eigi greiða leið úr skónum. Frágangur er vandaður og saumar styrktir til að auka endingu. Skórnir reimast hátt upp á ökklann og veita notandanum góða stuðning og þægindi.
Korkers hefur í yfir 50 ár hannað og þróað skóbúnað fyrir útivistarfólk. Korkers framleiðir nokkrar gerðir af vöðluskóm sem allar eiga það sameiginlegt að vera einstaklega hentugar, þægilegar og öruggar. Allir skór frá Korkers koma með einkaleyfisvörðum búnaði sem nefnist OmniTrax og byggir á þeirri hugmyndafræði að nota sama búnað í mismunandi aðstæðum. Með OmniTrax má skipta út sóla/botni vöðluskónna eftir því hvar er veitt og hvernig undirlagið er.
CND Gravity 10' #7
CND Gravity 14' #9/10
CND Nordic 13' #8/9
Stonfo Spólugálgi
Stonfo Reel Line Clip Taumhald
Stonfo Flytec Base Hnýtingaþvinga
Stonfo Taumaklippur
Loop Opti Dryfly - Black
Stonfo Hnýtingakambur
Bodkin - Nál með krók
Stonfo Lanyard Hálsfesti
Stonfo Vigt
Loop Z1 Tvíhendupakki 12,4' #7
Stonfo Elite Hnýtingagálgi 


















