Einarsson Silfur 5Plus

> Öflugt og fjölhæft hjól fyrir silungsveiðina
> Hentar stöngum í línuþyngd #4–7
> Silkimjúk bremsa og slitsterk áferð
> Vegur 160 g – rúmar WF6 + 100 m af 20 lb undirlínu

95.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Einarsson Silfur 5Plus Fluguhjól

Einarsson 5Plus er hannað fyrir veiðimenn sem vilja eitt hjól sem nýtist í sem flestum aðstæðum – hvort sem það er þurrfluguveiði í heiðavatni, púpuveiði andstreymis eða straumfluguveiði í sjóbirtingi að hausti. Það hentar sérlega vel með stöngum í línuþyngd #4–7 og er öruggt val fyrir þá sem nota mismunandi aðferðir með sömu stöng.

Hjólið er rennt úr hágæða flugvélaáli (6061 T651) og með Type III húðun, sem tryggir mikinn slitstyrk og vernd gegn veðri, höggum og salti. Silfuráferðin er látlaus og tímalaus – hjól sem fellur vel að hvaða stöng sem er. Inni í hjólinu er innsigluð kolefnisbremsa sem veitir stöðuga mótstöðu. Hún er bæði slétt og áreiðanleg í öllum stillingum og hentar því jafnt fínni taumaefnum sem og kraftmiklum átökum. Nýr breiðari bremsuhnappur gerir stillingar einfaldar og öruggar – líka í bleytu og kulda.

Lokaða grindin (full frame) bætir bæði styrkleika hjólsins og kemur í veg fyrir að þunnar línur eða taumefni fljúgi inn á milli laga. Hröð og einföld spóluskipting er tryggð með öruggri tvöfaldri festingu.

Helstu eiginleikar:

• Fjölhæft hjól fyrir silunginn
• Innsigluð kolefnisbremsa – örugg og silkimjúk í allri veiði
• Stærri bremsuhnappur – betra grip og nákvæm stjórnun
• Lokuð grind – heldur þunnum línum þar sem þær eiga að vera
• Type III anodisering – um 20 míkrómetrar af vernd gegn sliti og veðri
• Hröð og örugg spóluskipting
• Litur: Silfur

Tæknilýsing:

• Stærð: #4–7
• Þvermál: 95 mm
• Spólubreidd: 25 mm
• Þyngd: 160 g
• Rýmd: WF6 + 100 m af 20 lb Dacron
• Efni: 6061 T651 ál með Type III anodiseringu