Darkhorse vöðluskórinn hefur nú verið endurhannaður til hæfa betur fótum kvenna. Skórinn er, eins og aðrir frá Korkers, búinn útskiptanlegum OmniTrax-sólum, en þeim fylgir bæði gúmmí- og filtbotn. Aukalega eru negldir botnar fáanlegir, t.d. neglt filt og vibram.
Darkhorse eru með M2 Boa® vírakerfi í stað reima sem eykur mjög á þægindi, sérstaklega við að fara í skóna og úr. Framleiðslan er ákaflega vönduð en táin er styrkt auk þess sem saumar eru álagsþolnir. Í botni skónna eru rásir fyrir vatn sem tryggja skórinn haldist eins léttur og kostur er á, þegar á land er komið.
Korkers hefur í yfir 50 ár hannað og þróað skóbúnað fyrir útivistarfólk. Korkers framleiðir nokkrar gerðir af vöðluskóm sem allar eiga það sameiginlegt að vera einstaklega hentugar, þægilegar og öruggar. Allir skór frá Korkers koma með einkaleyfisvörðum búnaði sem nefnist OmniTrax og byggir á þeirri hugmyndafræði að nota sama búnað í mismunandi aðstæðum. Með OmniTrax má skipta út sóla/botni vöðluskónna eftir því hvar er veitt og hvernig undirlagið er.
Fishpond Cross Current Brjóstpoki
Fishpond Dakota 45" stanga- og hjólataska
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Fishpond Thunderhead Eco Shadowcast Camo – Bakpoki
Guideline Elevation 9' #7
Loon Caddy Smábrúsafesting
Guideline LPX Chrome 12,3' #6/7
Stonfo Synt Oval Tape #1 


















