Skemmtileg alhliða stöng sem er bæði fíngerð og öflug. Hún vinnur áreynslulaust á stuttu færi, en hægt er að beita meira afli og ná fram löngum köstum. Stöngin er ákaflega stöðug í köstum og er virk frá toppi niður í skaft. Einhendan vegur aðeins 88 grömm.
Hönnun CND
Þegar flugustöng er hönnuð skiptir máli hvernig hún mjókkar fram og hve hár stuðull og styrkur stangardúksins er. Þá skiptir fjöldi efnislaga og þykkt koltrefjanna töluverðu máli. Vinsælasta, og á sama tíma ódýrasta aðferðin við framleiðslu á flugustöngum, felur í sér eina stefnubundna lagningu kolefnisins eftir stönginni endurlangri.
Flestar hágæða stangir innihalda hinsvegar annað lag af koltrefjum, sem lagt er í 90 gráður á það fyrra. Sú hönnun gerir það að verkum að afköstin verða umtalsvert meiri. Við framleiðslu á CND Gravity flugustöngunum er aðferðin tekin skrefinu lengra með aðstoð nýrrar tækni sem nefnist Nano-Pitch.
CND tilfinning
Með þessari nýju tækni unnt að bæta við fleiri örþunnum koltrefjalögum, sem eru allt niður í 0,5 mm að þykkt (í stað 1,2 mm áður). Hin áhugaverða aðferð veitir notandanum mjög sérstaka upplifun, þar sem stöngin er í senn létt, fínleg og hröð með einstakri „CND-tilfinningu“ niður í korkinn.
Fyrstu koltrefjalög Gravity stanganna eru framleidd með hefðbundinni 90 gráðu tækni. Því næst eru önnur lög skorin með því að láta koltrefjarnar liggja á 45 gráðu horni. Að lokum er svo öðru koltrefjalagi bætt ofan í gagnstæðar 45 gráður. Þessi fjöllaga uppbygging gerir það að verkum að flugustangirnar eru mjög léttar, þær kasta einstaklega beint og ná fljótt að endurheimta jafnvægi eftir flugukastið.
CND fágun
CND Gravity stangirnar eru einstaklega fallegar og gleðja svo sannarlega augað. Þær skarta dökkgrænum lit með silfruðum vafningum og lykkjum úr títani. Svörtu ALPS-hjólasætin eru eins og sniðin að útlitinu og falla þau vel að handföngunum sem framleidd eru úr hágæða korki. CND stangirnar eru afhentar í stangarpoka og í vönduðum álhólki.
Fishpond Quickshot Stangarfesting
Loon Rouge Skæratöng
Xink sökkefni á flugur
Stonfo Áhaldasnúra
Tacky Daypack Flugubox Orange
Fishpond Nomad Canyon Silungaháfur
Fulling Mill Guide Flugubox - Blue
Loop Evotec G5 6/8
Tacky Original Flugubox 2X
Taumaklippur
Oros Strike Indicators Tökuvarar - Anti Glare
Umpqua UPG Foam WP Weekender Large Olive - Flugubox
Guideline WP Double Side Slit Foam - Flugubox
Guideline Elevation 9,9' #6
Loon Caddy Smábrúsafesting
Echo Lift 9' #7
Guideline Double Side Stillwater Flugubox
GL Clipper Taumaklippur
Tacky Pescador - Small - Burnt Orange - Flugubox
Loop 7X 9' #7
IG Silungapoki 












