Alta NGx Zip Vöðlur

Alta NGx Zip eru öflugugustu öndunarvöðlurnar frá Guideline. Þær eru með frábæra vatnsheldni og fyrsta flokks öndun. Þrátt fyrir að slitsterk efni séu notuð í vöðlurnar eru þær sveigjanlegar og með framúrskarandi hreyfanleika.

128.900kr.

SKOÐA STÆRÐATÖFLU

Alta NGx Zip eru vönduðustu rennilásavöðlurnar frá Guideline og henta veiðimönnum sem vilja mikil þægindi, góða endingu og frábæra öndun. Vöðlurnar eru rúmar þar sem þess er þörf og sniðið er mótað yfir hné og setsvæði til að tryggja góða hreyfigetu við veiðar. Styrking í klofi eykur bæði endingu og sveigjanleika þegar gengið er með árbökkum eða vaðið í krefjandi aðstæðum.

Vöðlurnar eru búnar Ergo Elevator™ axlaböndum með neoprene púðum, teygjanlegum böndum og seglum sem gera auðvelt að losa axlaböndin. Hægt er að breyta vöðlunum í mittisvöðlur á einfaldan hátt þegar veður og aðstæður leyfa. Á axlaböndunum eru einnig tvær Hypalon festingar fyrir aukahluti, til dæmis töng eða önnur smáverkfæri.

Efri hluta vaðlanna má þrengja eða víkka eftir þörfum, sem hjálpar til við að halda hita inni þegar kalt er í veðri. Að framan er vatnsheldur TIZIP® MasterSeal rennilás sem auðveldar að fara í og úr vöðlunum og tryggir góða vörn til lengri tíma. Tveir rúmgóðir brjóstvasar veita gott pláss fyrir flugubox og annað veiðidót. Þar fyrir neðan eru flísfóðraðir vasar til að verma hendur. Vasarnir eru með YKK AquaGuard® rennilásum sem hrinda frá sér slettum og léttum raka.

Framan á vöðlunum eru tvær Tool Garage™ festingar fyrir töng og aukahluti þannig að búnaðurinn sé alltaf við höndina án þess að flækjast fyrir. Þrjár beltislykkjur halda þéttu en teygjanlegu gúmmíbelti á sínum stað og veita góðan stuðning, sérstaklega þegar aukahlutir á borð við vaðstaf eða töng eru festir við beltið.

Sandhlífarnar eru úr sterku nylon-neoprene efni með teygju og málmkrók sem heldur þeim vel yfir vöðluskónum. Sokkarnir eru úr Comfort Plus™ neoprene og eru mótaðir eftir fótum til að tryggja góða passa og þægindi. Að innanverðu er renndur AquaGuard® vasi fyrir síma eða aðra smáhluti og aftan á hálsi er D-lykkja fyrir háf.