
Loop Tackle
Loop hefur um langt skeið skipað sérstakan sess í huga margra íslenskra veiðimanna. Í rúma fjóra áratugi hefur fyrirtækið hannað og þróað fluguveiðibúnað sem enn í dag nýtur sérstöðu á markaði. Veiðivörur fyrirtækisins hafa geti sér gott orð fyrir áreiðanleika, gæði og góða endingu. Loop Tackle telst í dag eitt af bestu fluguveiðimerkjum heims, enda frá upphafi lagt ríka áherslu á vandaða hönnun og framleiðslu. Hér má finna allar þær Loop vörur sem standa veiðimönnum til boða.
Leiðandi í þróun
Loop veiðivörur hafa ávallt haft mótandi áhrif á fluguveiðiheiminn enda fyrirtækið gjarnt á að koma með framsæknar nýjungar. Fljótlega eftir stofnun fyrirtækisins gekk fluguveiðisérfræðingurinn Göran Anderson til liðs við Loop. Hann hafði yfirumsjón hönnun fyrstu tvíhendanna, nýrra línukerfa og nýs kastafbrigðis sem við þekkjum í dag sem undirhandarköst (e. Underhand Cast). Með sinn verkfræðilega bakgrunn hóf Göran að kafa dýpra í eðlisfræðina og tókst að auka skilvirkni milli stangar og línu. Á þeim grunni byggir veiðiheimurinn enn í dag sína framleiðslu.
Notagildi í fyrsta sæti
Loop hefur alla tíð hannað og þróað sínar vörur innanhúss í Svíþjóð og stýrir þaðan öllum framleiðsluferlum í samvinnu við hóp hönnuða og tæknifræðinga. Allar vörur eru hannaðar með þarfir veiðimanna í huga, til að hámarka afköst og notagildi. Á síðustu árum hefur fyrirtækið gengið í gegnum endurnýjun lífdaga og er nú í hröðum vexti um allan heim. Þá hefur fyrirtækið beitt sér fyrir verndun villtra laxastofna og sett aukinn þrýsting á stjórnvöld víða um heim til að tryggja tilvist tegundanna.
Fjölbreytt vöruúrval
Í dag framleiðir fyrirtækið veiðivörur sem tengjast fluguveiði á einn eða annan hátt, s.s. einhendur, switch-stangir, tvíhendur. Þá stendur félagið áfram sterkt að vígi þegar kemur að fluguveiðihjólum og veiðifatnaði. Loop hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem eitt fremsta fluguveiðimerki heims og mun án nokkurs vafa halda áfram að standast væntingar kröfuharðra veiðimanna. Með vali á Loop færð þú vandaðan, traustan veiðibúnað og tekur um leið þátt í samfélagi veiðimanna, okkur öllum og umhverfinu til heilla.
Lever Fluguhnýtingasett
Dubbing tól
Loop Z1 Tvíhendupakki 13' #6
Stækkunargler með sogskál
Stækkunargler með þvingu
Stangarhaldari í vesti
Morsetto Airone Ferðahnýtingaþvinga
Veniard English Partridge Brown Back
Stonfo Stangarhaldari með segli
Veniard Hare Mask
Veniard Grey Partridge Neck Natural
Tubefly Fluguhnýtingasett
Veniard Silver Pheasant Body Feathers
Stonfo Taumaspóluhaldari
Loop ZX Einhendupakki 10' #8 