Nú styttist óðum í nýtt veiðitímabil og því rýmum við til fyrir nýjum vörum með útsölumarkaði í Veiðiflugum. Við bjóðum eldri veiðibúnað með 40–70% afslætti á meðan birgðir endast. Þetta er frábært tækifæri til að gera góð kaup fyrir sumarið og endurnýja eða bæta við búnaðinn.
Frábært úrval
Á útsölumarkaðnum má finna vöðlur, flugustangir, veiðifatnað, vöðluskó, fluguhjól, veiðitöskur og margt fleira á ótrúlegum kjörum. Athugið að netverslunin sýnir aðeins hluta úrvalsins, en í verslun Veiðiflugna er enn meira úrval af afsláttarvörum.
Útsölumarkaðurinn stendur yfir dagana 1.–7. mars.
Opið er mánudag til föstudags frá kl. 10–18 og á laugardag frá kl. 11–15.
