Nýtt frá Patagonia

Við vorum að taka upp nýja sendingu af einstaklega fallegum skyrtum og ullarpeysum frá Patagonia. Þetta eru hlýjar og klæðilegar flíkur sem henta jafnt í hversdagsnotkun, útivist og ferðalög. Fullkomnar til að standa af sér áskoranir íslensks veðurfars.


Fjord Flannel skyrturnar – hlýjar, mjúkar og áreiðanlegar

Fjord Flannel skyrturnar eru gerðar úr 100% lífrænni bómull og eru burstaðar til að veita mýkt og notalega áferð án þess að missa styrk. Þær henta vel einar og sér en nýtast einnig sem yfirskyrtur.

Patagonia Flannel

Catch Ink Black

Klassísk og fáguð litasamsetning þar sem dökkir tónar ráða ríkjum. Mjúk og notaleg skyrta fyrir daglegt amstur, útivist og ferðalög.

Skoða
Patagonia Flannel

Old Growth Green

Hlý og falleg flannelskyrta með dökkgrænu yfirbragði. Hentar vel jafnt í vinnu sem og frístundum.

Skoða
Patagonia Flannel

Deer Brown

Röndótt skyrta í hlýjum brúnum tónum sem gefa henni náttúrulegt yfirbragð. Mjúkt flannel og slitsterkt snið gera hana að frábærri alhliða flík.

Skoða
Patagonia Flannel

Dried Vanilla

Fallegt röndótt mynstur þar sem rauður litur er í forgrunni. Skyrta sem fangar hreyfingu og hlýja litatóna og virkar vel bæði sem millilag og yfirskyrta.

Skoða
Patagonia Flannel

Salt Grey

Mildur grár grunnlitur ásamt brúnum og grænum röndum. Skyrta sem passar nánast við allt og hentar í margvíslegar aðstæður.

Skoða

Wool-Blend ullarpeysurnar – náttúruleg hlýja og slitstyrkur

Ullarpeysurnar eru prjónaðar úr blöndu af endurunninni ull og endurunnu næloni sem sameina þægindi og styrk. Þær eru mjúkar og hlýjar án þess að vera þungar og henta vel árið um kring.

Patagonia Wool-Blend

Classic Navy

Stílhreint tímalaust útlit í djúpum dökkbláum lit. Peysa sem fer með öllu og heldur lögun sinni vel þrátt fyrir mikla notkun.

Skoða
Patagonia Wool-Blend

Old Growth Green

Róleg og náttúruleg mosagræn peysa með fallegum blæ. Hlý, notaleg og tilvalin í íslenskt veðurfar.

Skoða

Fjölnota flíkur sem endast

Það sem sameinar allar þessar flíkur er hönnun sem byggir á nytsemi og gæðum.

• Lífræn bómull eða endurunnar trefjar
• Vandaður frágangur og slitsterk efni
• Þægindi í fyrirrúmi
• Fair Trade™ vottuð framleiðsla

Hvort sem þú ert á leið í vinnu, í sumarbústaðinn eða á veiðislóð, þá er hér úrval flíka sem byggja á einfaldri en áreiðanlegri hugsjón: góð hönnun á að endast.