Vision Rivermaniac silungaháfurinn er hannaður fyrir silungsveiðar í ám þar sem léttleiki og meðfærileiki skipta miklu máli. Hann er nettur í sniði og auðveldur í notkun, sem gerir hann að góðum kost fyrir þá sem vilja lipran háf við ánna.
Grindin er úr léttu áli sem heldur þyngdinni í lágmarki án þess að fórna styrk. Stutt handfang, um 18 cm, gerir háfinn þægilegan í meðförum og auðveldan að hafa við höndina. Á handfanginu er mjúkt EVA-grip sem tryggir gott hald.
Netið er úr gúmmíefni sem fer vel með fiskinn og flækist síður í krókum. Dýpt netsins er um 35 cm. Þetta er léttur og hagnýtur háfur sem nýtist vel í fjölbreyttum aðstæðum við ánna.
- Lengd: 62 cm
- Breidd: 31 cm
- Þyngd: 260 g
- Grind: Ál
- Net: Gúmmí
- Dýpt nets: um 35 cm
Rapala Laxaháfur L 







