Vision Nymphmaniac silungaháfurinn er hannaður með púpuveiði og léttar silungsveiðar í huga. Hann er nettur, léttur og þægilegur í notkun, sem gerir hann að góðum félaga þegar hreyfanleiki og hraði skipta máli.
Grindin er úr léttu áli sem heldur þyngdinni niðri en veitir jafnframt nægan styrk. Handfangið er stutt, um 21 cm, sem gerir háfinn lipran og auðveldan í meðförum við ánna. Á því er mjúkt EVA-grip sem gefur gott hald, jafnvel í blautum aðstæðum.
Netið er úr gúmmíefni sem fer vel með fiskinn og minnkar líkur á að krókar festist í því. Dýpt netsins er um 50 cm sem gefur gott pláss fyrir silung og tryggir örugga löndun.
Þetta er einfaldur og áreiðanlegur háfur sem hentar sérstaklega vel fyrir þá sem stunda púpuveiði og vilja léttan og meðfærilegan búnað.
- Lengd: 76 cm
- Breidd: 42 cm
- Þyngd: 350 g
- Grind: Ál
- Net: Gúmmí
- Dýpt nets: um 50 cm
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat W. Blue Derhúfa
Loop Logo Meshback G. White Derhúfa
Guideline Forceps - Spring Creek 5" - Losunartöng
Patagonia Stealth Switch Pack 5L Veiðitaska - G. Green
IG Silungapoki
Opinel Trekking with sheath N°8 Veiðihnífur
Leatherman WAVE® PLUS PEG
Guideline Forceps- Straight 6" - Losunartöng
Loop Fly Trucker Cap Burnt Russet Derhúfa
Tacky Fly Dock - MagPad - Burnt Orange Flugupaddi
Guideline Rivolt 9' #5
McLean Weigh-Net Small (M112) - Silungaháfur með Vigt 










