Veniard Premium Fluguhnýtingasettið er afmælisútgáfa endurhönnuð árið 2023 til að fagna 100 ára sögu Veniard í hágæða fluguhnýtingarefnum. Settið sameinar bæði klassísk og nútímaleg efni og inniheldur nægt magn fyrir þúsund flugur. Þetta er eitt umfangsmesta og fjölbreyttasta sett sem Veniard hefur gefið út – fullkomið fyrir bæði byrjendur og reynda hnýtara.
Innihaldið spannar allt frá hefðbundnum fjöðrum og feldi yfir í nýrri og nútímaleg efni eins og Glister, Cactus Chenille, Krystal Flash og fjölbreyttar tegundir tinsels. Þannig nær settið yfir bæði þekktar klassískar flugur og nýrri strauma í fluguhnýtingum. Krókasafnið spannar fjölbreytt notkunarsvið og auðvelt er að hnýta bæði votflugur, púpur, straumflugur og þurrflugur.
Settið inniheldur einnig vandaðan grunn af hnýtingaáhöldum, m.a. hnýtingavæs, keflishöldu, hnútatól, skæri og hackle-töng. Einnig fylgir leiðbeiningabók fyrir byrjendur sem gerir settið sérstaklega aðgengilegt fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref.
Helstu efni í settinu (ekki tæmandi listi)
- Marabou
- Plastazote
- Glister Sparkle
- Stickle Dub
- Zonker
- Seal’s Fur Substitute
- Goose Biot (margvíslegir litir)
- Peacock herl
- Grey Duck & Hen Pheasant quills
- Fasanstirtlur (marglitar)
- Íkornahalar (blanda)
- Gull- og silfurkeilur / kúlur
- Damsel-augu
- Natural Grey CDC
- MOP chenille (2 litir)
- Cactus chenille (2 litir)
- Super Stretch Floss – 2 litir
- Krystal Flash
- Hjartarhár (Deer Hair)
- Magic Glass Nymph Body Material (2 stk.)
- Ready Stripped Hackle Quills
- Holographic tinsel – margvíslegir litir
- Cellire lakklím
- Krókar (fjölbreytt úrval)
- Partridge hackle (marglitt)
- Suede Chenille – 3 litir
- Fly Tyers Wax
- 6/0 Wisp hnýtingaþráður – svartur & ólívugrænn
- Uni-2-Tone Gold & Silver Mylar Tinsel
- Blývír
- Gull- og silfurvír (spólur)
- Glo-Brite Floss (2 litir)
- Glo-Brite Multi Yarn
- Pearl Mylar Tinsel
Acryl-flugulakk
Taumaklippur
Fishpond Thunderhead Eco Duffel Taska L 

















