Nano Silk hnýtingaþráðurinn er notaður af atvinnumönnum í fluguhnýtingum um allan heim. Hver vegna? Því þráðurinn er sá sterkasti sem völ er á, fáanlegur í mörgum litum og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika. Þráðurinn er svo sterkur að erfitt er að slíta hann við hnýtingar, enda um 10x sterkari en stál að sama þvermáli. Nano Silk er algjörlega flatur þráður og því má vefja honum margsinnis áður en bunga fer að myndast á flugunni. Með þræðinum má því framkalla netta hausa án þess að endingu flugunnar sé fórnað.
Nano Silk 30D 18/0 er hannaður til hnýtinga á smáum flugum, s.s. smáflugum í lax, micro hitchi, púpum og jafnvel þurrflugum. Þráðurinn er mátulegur í krókastærðir #16-#32, en einnig laxaflugur í stærðum #12-#18. Á hverju magnkefli eru 500 metrar.
Loop Opti Creek - Black
Scott Centric 9‘ #4
Loop 7X 9' #5
Echo Lift 8' #4
Fishpond Switchback Pro Mittistaska
Guideline Elevation 9' #7
Loop 7X 9' #7
Loop Opti Dryfly - Black
Loop Opti Strike - Black
Nám REN 11,6' #6
Loop Opti Rapid - Black
Loop Classic 8/11
Guideline Coastal Trucker Derhúfa 