Nano Silk er langsterkasti hnýtingaþráðurinn á markaðnum, svo sterkur að erfitt er að slíta hann við hnýtingar. Hann er 10x sterkari en stál að sama þvermáli. Þráðurinn er alveg flatur og því má vefja honum margoft áður en efnið fer að hlaðast upp á flugunni. Með þræðinum má því framkalla netta búka og hausa án þess að endingu flugunnar sé fórnað.
Nano Silk 20D 24/0 þráðurinn er sá grennsti af línunni frá Semperfli. Hann er hannaður til hnýtinga á afar smáum flugum, bæði í lax og silung. Þessi þráður hentar best í krókastærðir #16-#32, þó vissulega megi nota hann í stærri flugur. 100 metrar eru á hverju kefli og er þráðurinn fáanlegur í hvítu og svörtu.
Zap-A-Gap Lím með bursta
Flylab Fluguhnýtingasett
Vise Keflishalda
GL Áhaldaspóla
Acryl-þynnir
Morsetto Flylab Lever Hnýtingaþvinga
Semperfli Sparkle Dubbing Magnpakkning
Loon Water Based Thinner - Þynnir
Loon High Tack Swax - Dubbing vax 




