Classic Waxed 8/0 er vaxborinn fluguhnýtingaþráður sem hannaður er til alhliða nota. Hann hentar til hnýtinga á laxaflugum, straumflugum, púpum og þurrflugum í stærðum #6-#14. Þráðurinn er flatur með tvo kjarna svo auðvelt er að skipta honum upp, s.s. þegar dubb er vafið.
Classic Waxed er framleiddur úr hágæða pólýester og stenst þær kröfur sem fagmenn gera til efnisins. Þráðurinn er fáanlegur í fjölmörgum litum og er á afar samkeppnishæfu verði. 220 metrar á hverri spólu.
Kaiman Fluguhnýtingasett
Semperfli Dry Fly Polyyarn Caddis Magnpakkning
Loon High Tack Swax - Dubbing vax
Jungle Cock Gervifjaðrir 



































































