SALAR S4 15′ #10/11 Tvíhenda
SALAR S4 15′ #10/11 er stöngin fyrir stóru stundirnar – þegar veitt er í breiðum, straumþungum ám og fiskurinn er stór og kröfuharður. Þrátt fyrir stærð er hún ótrúlega létt og vel jafnvægisstillt, sem gerir daglangar veiðiferðir mögulegar án þreytu eða álags. Hún skilar öruggu og kraftmiklu kasti, hvort sem kastað er með þungum sökkendum, löngum hausum eða stórum flugum. Skaftið byggir upp spennu jafnt og þétt, með einkennandi „Salar kick“ – og skilar því öllu í loftið með mikilli nákvæmni og takti.
Stöngin er í 6 pörtum og flutningslengdin aðeins 85 cm, sem gerir hana einstaklega ferðavæna – hvort sem farið er í innanlandsferð, til Skotlands eða norður í Noreg. Hún er hágæða efnum sem tryggir styrk, næmi og endingu. Útlitið er eins og SALAR-stöngum einum er lagið: djúpur bordeaux-matt stangardúkur með samlitum vafningum og brons hjólasæti. Málband áletrað á stöngina veitir skjótan aðgang að mælingu hvenær sem er.
Helstu eiginleikar:
• Sérlega létt og öflug tvíhenda í sínum flokki
• Hönnuð fyrir erfiðar aðstæður og stóra fiska
• 6-parta smíði – pakkast í 85 cm
• Brons hjólasæti og hágæða korkhandfang
• Málband áletrað á stöngina – tilvalið í veiða og sleppa
• Útsaumaður þríhyrndur Cordura-hólkur fylgir
Tæknilýsing:
• Lengd: 15′ (4,57 m)
• Línuþyngd: #10/11
• Kastþyngd: 42–46+ g
• Þyngd stangar: 255 g
• Flutningslengd: 85 cm
Veniard Grey Tungsten sheet
Loop Connecting Derhúfa
Guideline Multi Grip Cork Handfang
Loon UV Fluorescing Clear Finish - Lakk
Stonfo Bobbin Elite - Keflishalda
Loop 7X 10' #6
Costa Tuna Alley Pro Veiðigleraugu 580G
Guideline Neck Gaiter Höfuðhlíf - Light Seaweed
Stonfo CDC Winding Tool
Guideline The Snake Derhúfa - Caramel
Hatch Finatic 12+
Fishpond Lodgepole Fishing Satchel Duskwood - Veiðitaska
Guideline Badge Trucker Cap Heat Derhúfa
Guideline Double Side Stillwater Flugubox
Fishpond Nomad Canyon Silungaháfur
Loop 7X 13' #7 























