Rangá – Skothaus (Flot)
Rangá (Core16) er sérhönnuð tvíhendulína frá Nextcast, þróuð fyrir krefjandi aðstæður. Skothausinn er mjög stuttur Skagit-haus sem hleður stöngina á skilvirkan hátt og kastar þyngstu sökkendum og stórum flugum án mikillar fyrirhafnar. Hún skarar fram úr öðrum sambærilegum línum – sérstaklega þegar notaðir eru T-14 eða T-18 sökkendar. Línan er mjög hentug þar sem þörf er á hámarksafli á litlu svæði – til dæmis við veiði með takmörkuðu bakplássi eða þegar kasta þarf þungum flugum við krefjandi aðstæður.
Rangá er kjörin fyrir stærri laxveiðiár þar sem djúpir hylir og straumþung vatnsföll krefjast kraftmikillar línu. Hún hefur reynst frábær í ám á borð við Eystri- og Ytri Rangá, Ölfusá, Þjórsá, Hvítá, Blöndu og Skjálfandafljót. Þrátt fyrir mikla burði getur Rangá einnig verið fínleg í framsetningu með réttum línuenda – sem gerir hana að fjölhæfu og sveigjanlegu verkfæri.
Rétt pörun skilar hámarksafköstum
Rangá er fjölenda (Multi Tip) lína og skal ávallt notast með viðeigandi línuenda. Heildarþyngd línunnar (skothaus + endi) þarf að vera í samræmi við skráð Skagit-þyngd viðkomandi tvíhendu. Þar sem skothausinn er stuttur og samþjappaður, er mælt með að velja um 50 grainum léttari línu en stöngin er gefin upp fyrir.
Dæmi: Ef stöngin er skráð fyrir 550–600 grain Skagit, skal miða við 550 grain. Þá væri heppilegt að nota 450 graina skothaus og 12 feta (105 graina) enda, sem saman mynda 555 grain – sem er hæfilegt miðað við tilgreinda þyngd stangarinnar.
• Fyrir línur undir 450 grain: 12 feta endi (105 grain)
• Fyrir línur yfir 450 grain: 15 feta endi (135 grain)
Helstu eiginleikar:
- Mjög stuttur og öflugur Skagit skothaus
- Fullkomin fyrir þungar flugur og sökkenda (t.d. T10, T14, T18)
- Hleður stöngina hratt og skilvirkt – jafnvel á þröngu svæði
- Virkar vel með fjölbreyttum línuendum
- Öflugur kjarni, endingargóð kápa og ID-merking til auðkenningar
- Traustar lykkjur á báðum endum
Zap-A-Gap Lím með bursta
Loon Áhaldasett
Loon High Tack Swax - Dubbing vax
Loop ZX Einhendupakki 9' #7
Áhaldaspóla
Patagonia Stand Up Trout Trucker Black Derhúfa
Loop Z1 Einhendupakki 9' #4
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Rapala Laxaháfur L
Guideline Logo Grá Derhúfa
Fishpond Tacky Original RiverMag Flugubox
Loop Z1 Tvíhendupakki 13,2' #8
Veniard Mallard Duck Drake Grey Flank Selected
Loop ZT Tvíhendupakki 14' #9
Guideline LPX Chrome Tvíhendupakki 12,3' #6/7
Stonfo Hair Stacker - Hárjafnari
Stonfo Stangarhaldari með segli
GL Losunartöng
Plaströr fyrir microtúpur
Stonfo Bobbin Elite - Keflishalda
Guideline Elevation 9,9' #6
Þræðari Elite 1mm
Af flugum, löxum og mönnum
Loop 7X 9' #6
Loon Rouge Skæratöng 







