Power Strike Salmon eru frammjókkandi taumar frá Guideline hannaðir í laxveiðina. Taumurinn er meðalstífur en virkilega þjáll og nýtist í öllum veðuraðstæðum, logni sem miklum vindi. Taumarnir eru afar sterkir m.v. sverleika, þeir eru glærir með örlitlum gráum tóni til að tryggja minni sýnileika í vatni.
Power Strike hefur mun meiri fínleika en margir aðrir taumar sem eru gjarnan of stífir og óþjálir. Taumarnir geta rétt úr smáum sem stórum flugum og auðvelda þannig veiðimanni fluguköstin. Þessir taumar eru 12 fet að lengd og eru heppilegir fyrir stærri einhendur í laxinn, þ.e. frá línuþyngd #7 og upp úr. Taumarnir fara einnig vel með flestum switch-stöngum og öllum tvíhendum upp að 15 fetum að lengd.
GL Áhaldaspóla
Loon UV Knot Sense - Hnútalím
Hnútaherðari
Loop ZX Einhendupakki 10' #6
Veniard Cock Pheasant Centre Tails Mixed
Taumaklippur
Stonfo línukarfa
Loon Áhaldaspóla
Guideline LPX Chrome Switch-pakki 11,7' #8/9
Stonfo Razor - Hársnyrtitól
Loon Hydrostop - Vatnsvari 







