Guideline Power Strike PRO Salmon 6,5’ er stuttur og kraftmikill taumur sem er sérstaklega hannaður fyrir veiðar með sökklínum. Hann byggir á reynslu laxveiðimanna og er þróaður til að skila hámarks stjórn og áreiðanlegri framsetningu í krefjandi aðstæðum.
Taumurinn er með sterkan afturhluta (butt) og ákveðna frammjókkun sem tryggir skilvirkan orkuflutning alla leið út í flugu. Stutta lengdin gerir hann sérstaklega hentugan með þungum sökkendum þar sem mikilvægt er að halda góðri tengingu og stjórn á flugunni.
Taumurinn er tilbúinn til notkunar og hentar vel beint úr pakka með sökklínum. Ef þörf er á má auðveldlega bæta við stuttu taumaefni að framan verðu til að lengja uppsetninguna, til dæmis þegar veitt er með léttari sökkendum.
Taumurinn er framleiddur úr hágæða nælonefni með vatnsfráhrindandi húðun sem minnkar vatnsupptöku, eykur endingu og heldur efninu mjúku og meðfærilegu. Hann er tilbúinn til notkunar með lykkju og kemur í tveggja stykkja pakkningu.
- Lengd: 6,5 ft (um 200 cm)
- Eiginleikar: Kraftmikil veltu, góð stjórn og stöðug framsetning
- Hönnun: Stuttur taumur með sterkan butt hluta og jafna frammjókkun
- Húðun: Vatnsfráhrindandi fyrir betri endingu
- Notkun: Fyrir laxveiði með sökklínum
- Pakkning: 2 stk í pakka
Stærðir:
- 0,45 mm – 14,2 kg
- 0,40 mm – 12,1 kg
- 0,35 mm – 10,2 kg
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #3
SALAR Daisy Burnt Bronze THREE
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #5
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #7
Guideline Mayfly Suede Derhúfa - DK Brown
Guideline Logo Grá Derhúfa 










