Guideline Power Strike PRO Salmon 15’ er langur og fjölhæfur taumur sem er hannaður fyrir laxveiði með nútíma tvíhendum og línum. Hann byggir á reynslu úr raunverulegum veiðiaðstæðum og er sérstaklega hentugur þegar þörf er á meiri lengd og nákvæmari framsetningu.
Taumurinn er með kraftmikinn afturhluta (butt) og vel útfærða frammjókkun sem tryggir skilvirkan orkuflutning alla leið út í flugu. Lengri uppbyggingin hjálpar til við að leggja fluguna mjúklega fram og gefur betri stjórn, sérstaklega þegar kastað er fyrir lax í flestum íslenskum ám.
Taumurinn er tilbúinn til notkunar og nægilega langur til að hægt sé að binda fluguna beint á hann. Hann hentar vel með flotlínum, en auðvelt er að aðlaga hann með því að stytta eða bæta við taumaefni að framan verðu eftir aðstæðum.
Taumurinn er framleiddur úr hágæða nælonefni með vatnsfráhrindandi húðun sem minnkar vatnsupptöku, eykur endingu og heldur efninu mjúku og meðfærilegu. Hann er tilbúinn til notkunar með lykkju og kemur í tveggja stykkja pakkningu.
- Lengd: 15 ft (um 457 cm)
- Eiginleikar: Mjúk framsetning, góð stjórn og stöðug veltu
- Hönnun: Sterkur butt hluti og jöfn frammjókkun
- Húðun: Vatnsfráhrindandi fyrir betri endingu
- Notkun: Fyrir laxveiði með tvíhendum
- Pakkning: 2 stk í pakka
Stærðir:
- 0,45 mm – 14,2 kg
- 0,40 mm – 12,1 kg
- 0,35 mm – 10,2 kg












