Patagonia River Salt II vöðluskórnir eru hannaðir til að standast krefjandi aðstæður í bæði ám og vötnum. Þeir sameina góða endingu, stöðugleika og grip sem gerir þá að áreiðanlegum kost fyrir fjölbreyttar veiðiaðstæður.
Yfirbyggingin er úr Cordura® netefni sem er létt, slitsterkt og þornar hratt. Efnið þolir vel álag frá grjóti hvössum grjótum, sem eykur endingu skónna til muna. Gúmmíhlífar við tá og hæl verja gegn höggum og núningi.
Hár skórinn og styrktur yfirhluti veita góðan stuðning við ökkla og stöðugleika. Stillanleg ól við ökkla hjálpar til við að halda skónum þéttum og kemur í veg fyrir að sandur og smágrjót komist inn.
Reimakerfið er hannað til að vera einfalt og öruggt, með hraðspennu sem auðveldar að fara í og úr skónum. Reimar eru fallega faldar til að koma í veg fyrir að línur festist.
Sólinn er Vibram® Megagrip sem veitir framúrskarandi grip á bæði blautum og þurrum yfirborðum. Hann skilur ekki eftir sig för og má negla fyrir aukið grip þar sem þess er þörf.
- Yfirbygging: Cordura® (létt og slitsterkt)
- Sól: Vibram® Megagrip
- Eiginleikar: Þorna hratt og veita góðan stöðugleika
- Hönnun: Hátt snið með stillanlegri ökklaól
- Lokun: Reimar með hraðspennu
- Sérkenni: Gúmmístyrkingar og neglanlegur sóli
Fishpond Local Hat - Sandstone/Brown Derhúfa
Patagonia Broadcaster Hat R. Green Derhúfa
Fishpond Tacky Pescador Leaflet Innlegg
Veniard Mallard Duck Wing Quills Blue/White Tip
Loon Sink Fast - Hreinsiefni fyrir sökklínur
Loop Logo Dad Cap Burnt Russet Derhúfa
Loon Top Ride - Þurrfluguduft
Tacky Pescador - Small - Burnt Orange - Flugubox
Tube Fly Tool - Túputól
Áhaldaspóla
Fishpond Blizzard Kælitaska
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat G. Green Derhúfa 















