Fisléttur og fallegur útivistarjakki frá Patagonia sem er 100% vatnsheldur. Jakkanum má pakka saman í lítinn poka sem er aðeins á stærð við tennisbolta. Hann er tilvalinn í dagstúrinn, gönguferðina eða aðra útivist. Þessi þriggja laga skel er með endingargóðum rennilás og rúmgóðum vasa fyrir flugubox og verkfæri. Ultralight er hin fullkomna útivistarflík sem fer lítið fyrir á ferðalögum.
Jakkinn er að fullu vatnsheldur, ákaflega léttur og með góða öndunareiginleika. Hann er framleiddur úr 3-laga nælonefni með H2No® Performance Standard skel. Á honum er góð hetta og stillanlegar ermalokanir. Rennilásar eru frá YKK en þeir eru bæði vatnsheldir og tæringarþolnir. Jakkinn er framleiddur í Fair Trade vottaðri verksmiðju.
CND Gravity 9' #6
Guideline NT11 Salmon 13,9' #9/10
Veniard Grey Goose Herl
Nám REN 12,6' #7
Patagonia Stealth 25L M Bakpoki - R. Green
Water Repellent - Vatnsvörn
Loop Z1 Tvíhendupakki 13,2' #8 













