Patagonia Swiftcurrent Traverse mittisvöðlurnar eru hannaðar fyrir veiðar þar sem léttleiki og hreyfanleiki skipta máli. Þær eru frábær kostur við veiðar í nettum ám, þegar vatnshæð er með minna móti og þar sem ekki er þörf á hefðbundnum brjóstvöðlum.
Efnið er 4 laga H2No™ Performance Standard sem er bæði vatnshelt og andar vel. Það er slitsterkt og úr 100% endurunnu efni með DWR-húðun sem hrindir frá sér raka og eykur þægindi í blautum aðstæðum.
Mittið er teygjanlegt og aðlagast vel líkamanum, sem gerir auðvelt að fara í og úr vöðlunum. Með fylgir SecureStretch vöðlubelti sem heldur vöðlunum stöðugum án þess að síga. Rennilás með fellingu að framan eykur þægindi og einfaldar notkun.
Sniðið er mótað með hreyfigetu í huga, með styrktum saumum, mótaðri setu og skálmum sem draga úr álagi og bæta endingu. Á lærum eru teygjanlegir vasar með frárennslisholum sem veita fljótlegt aðgengi að búnaði.
Neðst eru slitsterkar styrkingar við ökklasvæði sem vernda gegn núningi. Sokkar eru anatomískir og liggja vel að, sem skilar þægilegri tilfinningu í vöðluskóm.
Vöðlurnar eru framleiddar í Fair Trade Certified™ verksmiðju, sem styður við bætt kjör og réttláta umbun fyrir starfsfólk.
• Efni: 4 laga H2No™ (100% endurunnið)
• Eiginleikar: Vatnsheldar, anda vel og slitsterkar
• Snið: Hreyfanlegt með mótaðri setu og skálmum
• Mitti: Teygjanlegt með SecureStretch vöðlubelti
• Vasar: Tveir hliðarvasar með frárennsli
• Sérkenni: Slitstyrkingar við ökkla og mótaðir sokkar
Costa Loop Hálsól
GL Hitamælir
Taumaklippur
GL Losunartöng
Patagonia Take a Stand Trucker Hat S. Blue Derhúfa 



















