Swiftcurrent Expedition Zip eru glæsilegar rennilásavöðlur frá Patagonia. Þær eru framleiddar úr þriggja- og fjögurra laga öndunarefni sem er að fullu vatnshelt og nefnist H2No®, en það hefur Patagonia prófað og þróað undanfarinn áratug. Efnið er orðið slitsterkara og þjálla en áður sem gerir vöðlurnar einkar endingargóðar og um leið afar þægilegar.
Swiftcurrent Expedition Zip eru sérstaklega styrktar í klofi og skálmum svo veiðimenn þurfi ekki að hafa áhyggjur af saumum þegar gengið er um brattlendi eða í öðrum krefjandi aðstæðum. Þá eru vöðlusokkarnir sérstaklega hannaðir til að standast mikið álag en þeir eru ekki framleiddir úr hefðbundnu neoprene-efni. Þess í stað notar Patagonia blöndu af gúmmíefnum, samskonar þeim sem notuð eru í blautbúninga. Á hnjám vaðlanna eru hnépúðar til aukinna þæginda þegar kropið er. Vöðlunum fylgir teygjanlegt belti.
Vöðlurnar eru renndar með níðsterkum YKK-rennilás sem er 100% vatnsheldur og stenst álagið við mikla notkun. Hæð vaðlanna má stilla með einföldum hætti, t.d. má færa þær neðar á heitum sumardögum. Tveir rúmgóðir vasar eru utan á vöðlunum, báðir með vatnsvörðum rennilásum. Á hliðum eru fóðraðir vasar fyrir kaldar hendur. Vöðlubeltið er ú teygjanlegu efni sem situr í slíðrum, til varnar því að beltið færist úr skorðum. Að innanverðu er tvöfaldur vatnsheldur poki sem velta má fram, og er ætlaður undir síma og bíllykla. Í þeim rúmast einnig flugubox eða ýmiss veiðitól.
Patagonia stígur sífellt fleiri skref í átt að sjálfbærari framleiðslu, enda fyrirtækið víðast hvar verið leiðandi afl í umhverfismálum. Í Swiftcurrent vöðlunum eru a.m.k. 70% efnisins endurunnið, sem kemur síst niður á gæðum og endingu.
Loop Z1 Einhendupakki 9' #4
Guideline Embrace Einhendupakki 9' #5
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #5
Loop Z1 Einhendupakki 7,9' #3
Loop Z1 Einhendupakki 10' #7
Loop Connecting Derhúfa
Finisher tool - fyrir endahnútinn
Echo Lift Einhendupakki 8' #4
Guideline The Snake Derhúfa - Caramel
GL Áhaldaspóla
Fishpond Headwaters Terra Derhúfa
Guideline Salmon Suede Derhúfa - Tan
Guideline Logo Svört Derhúfa
Guideline The Camper Dark Grey Derhúfa
Reiða Öndin - Stuðningssarpur
Guideline The Waterfall Solartech Derhúfa
Guideline Elevation 9' #7
Loon Tying Mat - Fluguhnýtingamotta
Guideline LPX Nymph Einhendupakki 10,2' #3
Costa Blackfin Pro Gray Veiðigleraugu 580G
Vac Rac Stangahaldari með segli
Loon Skæratöng
Transformer Hnýtingaþvinga
Fishpond Thunderhead Eco Yucca - Vatnsheld Mittistaska
Fishpond Nomad Native Silungaháfur 



















