Swiftcurrent Expedition eru glæsilegar vöðlur frá Patagonia. Þær eru framleiddar úr þriggja- og fjögurra laga vatnsheldu öndunarefni sem nefnist H2No®, en það hefur Patagonia prófað og þróað undanfarinn áratug. Efnið er nú slitsterkara og þjálla en áður sem gerir vöðlurnar einkar endingargóðar og um leið þægilegar.
Swiftcurrent Expedition eru sérstaklega styrktar í klofi og skálmum svo veiðimenn þurfi ekki að hafa áhyggjur af saumum þegar gengið er um brattlendi eða í öðrum krefjandi aðstæðum. Þá eru vöðlusokkarnir sérstaklega hannaðir til að standast mikið álag en þeir eru ekki framleiddir úr hefðbundnu neoprene-efni. Þess í stað notar Patagonia blöndu af gúmmíefnum, samskonar þeim sem notuð eru í blautbúninga. Á hnjám vaðlanna eru hnépúðar til aukinna þæginda þegar kropið er. Vöðlunum fylgir teygjanlegt belti.
Að framanverðu er stór renndur vasi fyrir miðju með vatnsvörðum rennilás. Á hvorri hlið eru renndir fóðraðir vasar fyrir hendur. Að innanverðu er tvöfaldur vatnsheldur poki sem velta má fram, og er ætlaður undir síma og bíllykla. Axlarbönd eru stillt einu handtaki og má færa efri hlutann frá bringu að mitti. Sú hönnun er einkennismerki Patagonia sem oft getur komið sér vel, sérstaklega á góðviðrisdögum þegar heilar vöðlur eru óþarfar. Vöðlurnar má m.ö.o. nota á hefðbundinn hátt en einnig sem mittisvöðlur.
Patagonia stígur sífellt fleiri skref í átt að sjálfbærari framleiðslu, enda fyrirtækið víðast hvar verið leiðandi afl í umhverfismálum. Í Swiftcurrent vöðlunum eru a.m.k. 70% efnisins endurunnið, sem kemur síst niður á gæðum og endingu.
Guideline Chrome Trucker Derhúfa
Loon Tying Mat - Fluguhnýtingamotta
Guideline Logo Grá Derhúfa
Úr búri náttúrunnar
Veniard Grey Goose Herl
Finisher tool - fyrir endahnútinn
GL Losunartöng
Loon Áhaldaspóla
Loop Z1 Einhendupakki 7,9' #3
Loop Z1 Einhendupakki 9,6' #7
Veniard Cock Pheasant Centre Tails Mixed
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #7
GL Áhaldaspóla
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Svört Derhúfa
Costa Ferg Veiðigleraugu 580G
Loon Low Tack Swax - Dubbing vax
Fishpond San Juan Brjóstpoki
Vac Rac Pro Stangahaldari með segli 





















