Patagonia Swiftcurrent® Expedition vöðlur – Basin Green
SKOÐA STÆRÐATÖFLUSwiftcurrent® Expedition vöðlurnar eru flaggskip Patagonia. Þær eru endurbætt útgáfa sem sameinar háþróaða tækni, sjálfbær efni og ótrúlega endingu. Vöðlurnar eru hannaðar fyrir krefjandi aðstæður, hvort sem er við veiðar í ískaldri jökulá eða á löngum göngum um mólendi. Þetta eru hinar fullkomnu vöðlur fyrir þá sem krefjast þess besta af búnaðinum sínum.
Vöðlurnar eru sérstaklega hannaðar fyrir erfiðar aðstæður og eru því verulega endingagóðar. Nýtt snið vaðlanna eykur hreyfigetu og bætir verulega þægindi. Neðri hlutar fóta í stærri stærðum hafa verið víkkaðir örlítið til að bæta hreyfanleika og gera það auðveldara að fara í og úr sokkunum. Með stillanlegum axlaböndum og smellum er auðvelt að aðlaga sniðið frá bringuhæð niður í mittishæð og þannig bregðast við breytilegum aðstæðum. Vatnsheldur innri vasi verndar verðmæti eins og síma eða lykla fyrir raka, og fóðraðir vasar veita höndum skjól gegn kulda.
Helstu eiginleikar
- Yfirbygging sem endist:
Efri hluti vaðlanna er úr 4-laga, örþéttu H2No™ endurunnu pólýester efni með vatnsheldri öndunarfilmu. Neðri hlutinn er styrktur með þyngra, 4-laga efni fyrir hámarks slitþol. - Vatnsheld DWR-áferð án PFC/PFAS:
Umhverfisvæn og öflug vörn gegn raka án skaðlegra efna. - Frábær hreyfigeta og þægindi:
Nýtt snið, formsaumaðar fætur, sérhannaður klofsaumur og fjarlægjanlegir hnépúðar veita náttúrulega hreyfingu og aukin þægindi – líka á löngum dögum. - Stillanleiki og aðlögun:
Fullkomlega stillanleg axlabönd með smellum svo auðvelt er að breyta vöðlunum úr uppháum í mittisvöðlur. Þægilegt Secure Stretch™ vöðlubelti og lykkjur að framan og aftan tryggja öruggar festingar. - Snjöll geymsla:
Vatnsheldur innri vasi fyrir verðmæti, tveir teygjanlegir innri vasar, stór brjóstvasi með vatnsfráhrindandi rennilás og vasi til að verma hendur. Auk þess eru festingar fyrir ýmis veiðitól og þurrkunarlykkja á bakinu. - Ending og smáatriði:
Slitvarin ökklasvæði, anatómísk lögun í fótum og sokkum (sérsniðnir vinstri og hægri) tryggja þægindi allan daginn – sérstaklega í köldu vatni.
Vöðlurnar eru framleiddar úr 100% endurunnu pólýester í Fair Trade Certified™ verksmiðju – þar sem vinnuaðstæður og réttindi starfsfólks eru í hávegum höfð.
Opinel Trekking with sheath N°8 Veiðihnífur
Rub Silungaháfur
Patagonia Guidewater S. Green Vatnsheldur Bakpoki
Einarsson Svart 3Plus
Fishpond Tacky Pescador MagPad Flugubox
Costa Fly Line Veiðigleraugu 580G
Costa Grand Catalina Veiðigleraugu 580G
GL Áhaldaspóla
Guideline Elevation 9' #8
Patagonia Stealth Switch Pack 9L Veiðitaska - B. Brown
Guideline NT11 Switch-stöng 11,6' #6/7 - 6 pcs
Opinel Trekking N°8 Dark Brown Vasahnífur
Loon Bio Glow - Tökuvari sem lýsir í myrkri
Vatnsdalsá
Dubbing tól með klemmu
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Fishpond Blizzard Cooler Duskwood Kælitaska
Stonfo tökuvarar með lími
SALAR Daisy Burnt Bronze THREE
Einarsson Svart 9Plus
Bodkin - Nál með krók
Guideline Aeon - Black/Gold #9/11
Echo Lift 7,6' #3 



























