Patagonia Stealth Switch Pack 9L er einstaklega fjölhæf veiðitaska sem aðlagast aðstæðum og notanda. Hún má bera yfir vinstri eða hægri öxl sem sling-tösku eða breyta í mittistösku eftir þörfum, sem gerir hana mjög sveigjanlega við veiðar.
Taskan er hönnuð með notagildi í fyrirrúmi. Á framhlið og axlaról eru innbyggðir seglar sem halda flugum, klippum eða töngum tímabundið á sínum stað. Hentugt þegar skipta þarf hratt um flugu. Á ólinni og töskunni sjálfri eru festingar fyrir áhöld (hemo/zinger), auk margra festipunkta fyrir aukabúnað.
Geymslurýmið er vel skipulagt. Að innan eru fjögur rúmgóð teygjanleg hólf sem halda búnaði á sínum stað, auk rennilásavasa að framan og vasa á axlaról sem hentar vel fyrir síma. Að utan er sér vasi fyrir vatnsbrúsa sem hægt er að stilla fyrir hægri eða vinstri notkun, eða nýta fyrir jakka eða annan búnað.
Taskan er úr slitsterku og vatnsþolnu ripstop-efni úr endurunnum pólýester með TPU-húðun, og er með tæringarþolnum rennilásum sem henta vel í blautum aðstæðum. Hún er framleidd í Fair Trade Certified verksmiðju þar sem lögð er áhersla á ábyrga framleiðslu.
- Rúmmál: 9 lítrar
- Þyngd: 730 g
- Efni: 100% endurunninn pólýester (ripstop) með TPU-húðun
- Hólf: Fjögur teygjanleg innri hólf + ytri rennilásavasar
- Burðarmöguleikar: Sling (vinstri/hægri) eða mittistaska
- Sérkenni: Seglar, festingar fyrir áhöld, vatnsbrúsavasi
- Framleiðsluland: Víetnam
Patagonia Fly Catcher M. Khaki Derhúfa
Frödin FITS Túpunál
Loop 7X 9' #7
Tacky Daypack Flugubox 2X
Fishpond San Juan Brjóstpoki
Loon Nano Light UV ljós
Patagonia Broadcaster Hat W. Stone Derhúfa
Loop Dry 25L Bakpoki
Guideline Embrace Switch-pakki 11' #7/8
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #3
Zap-A-Gap Lím með bursta
Loon Water Based Thinner - Þynnir
Stonfo Áhaldasegull
Leech ATW2 - Intro - Copper
Stonfo Taumaklippur
Guideline GL Mesh Trucker V. Khaki Derhúfa 





